Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Samúel Karl Ólason skrifar 7. september 2026 23:53 Grindr er stærsta stefnumótaforrit heims fyrir LGTBQ-fólk. Getty/Thomas Fuller, Sopa Images Forsvarsmenn stefnumótaforritsins Grindr hafa samþykkt að greiða 26 milljónir punda til að binda enda á lögsókn gegn fyrirtækinu vegna ásakana um að persónuupplýsingum breskra notenda hafi verið deilt með auglýsingafyrirtækjum. Þar á meðal eru upplýsingar um það hvort viðkomandi notendur hafi verið smitaðir af HIV-veirunni og kynhneigð þeirra.
Grindr er stærsta stefnumótaforrit heimsins fyrir LGTBQ-fólk. Notendur Grindr hafa þann valkost að deila upplýsingum um HIV-smit og hvenær þeir fóru síðast í skoðun. 26 milljónir punda samsvara um 4,3 milljörðum króna. Til stendur að greiða þetta í tveimur greiðslum til um það bil tólf þúsund aðila sem komu að málsókninni. Það samsvarar um 360 þúsund krónum á hvern. Málið var höfðað í Bretlandi árið 2024 en ásakanirnar eiga rætur að rekja til tímabilsins fyrir 2020 en þá var samfélagsmiðillinn í eigu kínverska fyrirtækisins Kunlun. Upp komst um gagnadeilinguna árið 2018. Þá höfðu eigendur Grindr selt upplýsingarnar til fyrirtækjanna Apptimize og Localytics. Sjá einnig: Stefnumótaforrit deildi upplýsingum um HIV-smit Norska persónuverndarstofnunin Datatilsynet sektaði eigendur Grinder um tæpan milljarð árið 2021. Samkomulagið felur í sér að fyrirtækið játar ekki að hafa gert neitt rangt. Í tilkynningu sem BBC vísar til segir að þótt forsvarsmenn fyrirtækisins hafni ásökununum, geri þeir sér grein fyrir þeim slæmu áhrifum sem málið hefur haft og hvað það hefur komið niður á því trausti sem notendur bera til samfélagsmiðilsins. Árið 2020 gerðu yfirvöld í Bandaríkjunum kínverskum eigendum Grindr að selja samfélagsmiðilinn vegna áhyggja af meðhöndlun persónuupplýsinga notenda. Þá keyptu fjárfestar í félagi sem heitir San Vicente Acquisition LLC samfélagsmiðilinn fyrir 620 milljónir dala (um 75 milljarðar króna í dag). Ekki var gefið upp hverjir voru á bak við félagið en Reuters sagði svo seinna meir frá því að fjárfestar í félaginu hefðu tengingar við Kunlun. Tekjur Grindr voru 16,7 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi og hagnaður um 2,2 milljarðar.
Bretland Samfélagsmiðlar Stefnumótaforrit Hinsegin Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira