Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Andri Broddason skrifar 8. september 2026 08:01 Meiðsli Isack Hadjar virðast ætla að dragast á langinn. Bryn Lennon/Getty Images Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst.
Red Bull hefur staðfest að Isack Hadjar muni ekki keyra þegar spænski kappaksturinn fer í fyrsta sinn fram á glænýrri kappakstursbraut í Madrid. Þetta er þriðja keppnin sem hann missir af en hann hefur einnig verið fjarverandi í bæði ítalska kappakstrinum og hollenska kappakstrinum. Hadjar var á boxæfingu í sumarfríinu sínu og endaði á að bráka úlnliðinn sinn en læknateymi Red Bull gerði ráð fyrir að Hadjar væri fljótur að jafna sig. Meiðslin virðast ætla að taka lengri tíma fyrir Hadjar að jafna sig en búist var við og á meðan hann er meiddur hefur Liam Lawson keyrt bílinn hans hjá Red Bull. Yuki Tsunoda, fyrrum ökumaður Red Bull, hefur því komið í RB-liðið og keyrt bílinn hans Liam Lawson á meðan hann er hjá Red Bull. Tsunoda hefur gengið þokkalega í endurkomunni og náði síðasta stigasætinu í ítalska kappakstrinum. Hann er því með fleiri stig en þrír ökumenn sem hafa tekið þátt í öllum keppnum tímabilsins. Lance Stroll hefur ekki enn fengið stig með Aston Martin og nýliðarnir í Formúlu 1, Cadillac, sem er með ökumennina Valtteri Bottas og Sergio Perez, hafa ekki enn fengið stig. Gengi Liam Lawson hjá Red Bull hefur verið sveiflukenndara þar sem hann hefur sýnt góða frammistöðu en einnig verið óheppinn. Hann byrjaði ítalska kappaksturinn á þjónustusvæðinu eftir að hafa tekið vélarrefsingu eftir vonbrigðar tímatökur. Hann lenti í samstuði við Nico Hulkenberg, ökumann Audi, snemma í keppninni og skemmdist bíllinn við það. Hann endaði því keppnina fjórtándi á meðan liðfélagi hans, Max Verstappen, var á verðlaunapalli.
Akstursíþróttir Tengdar fréttir Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Isack Hadjar fær aftur þriðja sætið í Mónakó eftir að áfrýjunardómstóll Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins hafnaði áfrýjun Alpine. Pierre Gasly var verðlaunað þriðja sæti kappakstursins eftir að Alpine áfrýjaði refsingum sem hann fékk. 4. september 2026 13:30 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Formúla 1 snýr aftur til Afríku Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Hamilton vonast til þess að keppa í Afríku Varað við miklum hita yfir kappakstrinum í Singapúr Kláraði að hjóla 420 km á fjórum dögum fyrir kappakstur Áföllin halda áfram að dynja á Russell Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Verstappen vann skrautlega keppni Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Kunnugleg framlína í Malasíu Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Sjá meira
Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Isack Hadjar fær aftur þriðja sætið í Mónakó eftir að áfrýjunardómstóll Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins hafnaði áfrýjun Alpine. Pierre Gasly var verðlaunað þriðja sæti kappakstursins eftir að Alpine áfrýjaði refsingum sem hann fékk. 4. september 2026 13:30