Formúla 1

Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti

Andri Broddason skrifar
Williams breytir útlit sínu um helgina í bíl sem var styrktur af Bin Laden-fjölskyldunni.
Williams breytir útlit sínu um helgina í bíl sem var styrktur af Bin Laden-fjölskyldunni. Samsett/Getty/Williams

Formúla 1 snýr aftur til Madridar eftir 45 ára fjarveru og mun kappaksturinn fara fram á glænýrri kappakstursbraut. Williams ætlar að fagna því með vitnun í gamlan bíl þeirra en sá bíll var með umdeilanlegan styrktaraðila.

Árið 1979 var Williams-liðið að berjast í bökkum við að halda sér á floti. Bílinn sárvantaði styrktaraðila og fór Frank Williams, eigandi liðsins, til Sádi-Arabíu til þess að leita að styrktaraðilum. Það endaði svo að hann fékk fullt af styrktaraðilum og náði að halda liðinu gangandi.

Eitt fyrirtækið sem ákvað að styrkja Williams var hótelkeðjan Albilad en hún var í eigu Bin Laden-fjölskyldunnar. Í þeirri fjölskyldu var hryðjuverkamaðurinn Osama Bin Laden sem er þekktastur fyrir að hafa skipulagt árásina á Tvíburaturnana 9. september árið 2001.

Í dag eru 25 ár síðan turnarnir hrundu og því óheppileg tímasetning á því að breyta útliti bílsins í eitthvað sem minnir á Bin Laden-fjölskylduna.

Strangt til tekið er nýtt útlit Williams-bílsins ekki það sama og bílsins sem var með Albilad-auglýsinguna. Síðasta keppnin í Madrid kom ári eftir að Albilad hætti að styrkja Williams en bíllinn hélt sama útliti og er algengt að rugla bílunum saman. Í byrjun árs 1981 var Albilad enn að styrkja liðið en hætti því seinna á tímabilinu.

Williams-liðið heldur því litaþema gamla bílsins en það var nánast það sama árið 1980, þegar Albilad var að styrkja liðið, og 1981, þegar síðast var keppt í Madríd. Engir gamlir styrktaraðilar birtast þó á bílnum um helgina þar sem liðið heldur einungis núverandi styrktaraðilum. Williams-bíllinn hefur þó sjaldan verið hvítur og minnast einhverjir Albilad-styrktaraðilanum þegar þeir sjá hvítan Williams bíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×