Innlent

Jarð­syngur sinn besta vin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Steinn Ármann og Davíð Þór í gervi Radíusbræðra.
Steinn Ármann og Davíð Þór í gervi Radíusbræðra.

Útför Steins Ármanns Magnússonar leikara verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, heimabæ leikarans, klukkan 13 í dag. Davíð Þór Jónsson, prestur og besti vinur Steins, jarðsyngur. Útförinni verður streymt á Vísi.

Steinn Ármann andaðist á heimili sínu í Hafnarfirði föstudaginn 21. ágúst á 62. aldursári. Steinn var annar helmingur gríntvíeykisins Radíusbræðra en Davíð Þór var hinn helmingurinn. Báðir voru þeir Hafnfirðingar og höfðu starfað saman í hljómsveitinni Kátum piltum.

Davíð Þór segir frá útförinni á Facebook.

„Kæru vinir. Útför Steins Ármanns verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 10. september kl. 13. Streymt verður frá athöfninni á visir.is,“ segir Davíð.

„Mig langar að benda ykkur, sem viljið kveðja Stein, á að hafa tímann fyrir ykkur. Það er viðbúið að það verði fjölmennt og erfitt að finna bílastæði; hugsanlega verður nauðsynlegt að ganga nokkurn spöl frá bílnum að kirkjunni. Hafið það í huga þegar þið leggið af stað, reynið jafnvel að sameinast í bíla eða koma með öðrum hætti en á einkabíl (t.d. væri mjög viðeigandi að koma hjólandi),“ segir Davíð.

Ástæðan er sú að Steinn Ármann fór ferða sinna í seinni tíð að langmestu leyti á hjólinu og afgreiddi margan reiðhjólaáhugamanninn í versluninni Erninum í nokkur ár.

Útförin hefst klukkan 13 og verður sem fyrr segir í streymi á Vísi.


Tengdar fréttir

Var orðinn dagdrykkjumaður

Steinn Ármann Magnússon sagði skilið við áfengi fyrir rúmi ári en hann segir það hafa stjórnað lífi sínu. Hann var það langt leiddur að hann íhugaði að gerast útigangsmaður. Líf hans hefur gjörbreyst og nú lítur hann framhaldið björtum augum.

Steinn Ármann er látinn

Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári.

Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“

Fjöldi fólks hefur ritað fallegar færslur á samfélagsmiðlum eftir að greint var frá andláti Steins Ármanns Magnússonar, leikara og grínista, sem andaðist á heimili sínu á föstudag. Í þessum færslum eru margir mannkostir Steins Ármanns taldir upp, einn þeirra er þó tekinn fram oftar en aðrir: Það er hvað hann var fyndinn.

Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“

„Engin orð. Bara sorg,“ skrifar Séra Davíð Þór Jónsson um fregnir af andláti Radíusbróður síns, Steins Ármanns Magnússonar. Hann hefur ekki fleiri orð um dánarfregnina í stuttri færslu á Facebook að sinni, en fjöldi fólks vottar honum samúð sína í athugasemdakerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×