Formúla 1

Nýja brautin í Madrid toppi Móna­kó

Andri Broddason skrifar
George Russell var hraðastur á fyrstu æfingum á nýju kappakstursbrautinni í Madríd.
George Russell var hraðastur á fyrstu æfingum á nýju kappakstursbrautinni í Madríd. Joe Portlock/Getty Images

Formúla 1 keppir á glænýrri kappakstursbraut í Madríd um helgina þegar spænski kappaksturinn fer fram. George Russell, ökumaður Mercedes, var hraðastur á fyrstu æfingum og segir brautina vera erfiðari heldur en brautina í Mónakó.

Nýja kappakstursbrautin í Madríd er götubraut sem inniheldur mikið af kröppum beygjum og stutt er í veggina frá kappaksturslínunum sem bílarnir keyra. Ökumenn keyra meðfram veggjunum á gríðarlegum hraða og má lítið út af bregða svo að ökumenn klessi á.

Kappakstursbrautin í Mónakó er sögufræg þar sem keyrt var um götur Mónakó og stutt í alla veggi. Sú braut er það þröng að hún býður ekki upp á mikinn hraða og því auðveldara að forðast veggina þar heldur en í nýju brautinni í Madríd.

„Í Mónakó eru veggirnir nær, en vegna þess að þú ert að keyra mun hægar þá geturðu bjargað þér ef þú gerir mistök og ert að stefna í vegginn,“ sagði George Russell um nýju brautina í Madríd. Hann var hraðastur í fyrstu æfingum og var 0.286 sekúndum hraðari en liðsfélagi hans Kimi Antonelli.

Sumar beygjur eru gríðarlega krefjandi þar sem veggirnir nálgast bílana óðfluga. Á flestum brautum geta bílarnir komist upp með að rekast aðeins utan í vegginn án þess að mikið tjón verði á bílnum. Svo virðist sem það sé erfiðara á nýju kappakstursbrautinni í Madríd.

Ferrari-bílarnir settu hraðasta tíma æfinganna á millihörðu dekkjunum en eftir að Mercedes-bílarnir fóru á mjúku dekkin þá var enginn annar bíll sem gat haldið í við þá. Allir ökumenn sluppu þó við að enda í veggnum á fyrstu æfingum en einungis tímaspursmál er hvenær einhver gerir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×