Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Kjartan Kjartansson skrifar 16. september 2026 06:03 Gat myndast í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu á hverjum vetri á suðurhveli. Það hefur farið minnkandi frá því að ríki heims sammæltust um að banna ósoneyðandi efni á 9. áratug síðustu aldar. NASA Gatið í ósonlaginu yfir Suðurskautslandinu hefur sjaldan verið minna en í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem gatið er umtalsvert minna en meðaltal undanfarinna áratuga.
Ósonlag jarðar hefur verið á batavegi frá því í kringum aldamót eftir að ríki heims bönnuðu algeng ósoneyðandi efni árið 1987. Gatið á suðurhveli í fyrra var það fjórða til fimmta minnsta frá því að það var sem stærst árið 1992. Hlutfallslega þunnt lag ósons í heiðhvolfi jarðar lokar á nær alla útfjólubláa geilsun frá sólinni. Slíkir orkuríkir geislar eru skaðlegir lífverum. Þeim fylgir meðal annars aukin hætta á húðkrabbameini í mönnum. Gatið hefur verið undir meðaltali áranna 1990 til 2010 bæði að flatarmáli og þykkt undanfarin tvö ár í röð samkvæmt skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar sem gefin var út á degi ósonlagsins í dag, 16. september. Þynning ósonlagsins er árstíðarbundin. Það myndast árlega yfir Suðurskautslandinu að vetri til en á fimm til tíu ára fresti yfir norðurhveli. Þykkt ósonlagsins var undir meðaltali yfir stórum hluta Grænlands, Evrópu, Mið-Asíku, norðanverðu Japan og Kamtsjaka-skaga í Rússlandi í fyrra. Útfjólublá geilsun aukist um fimmtung í Evrópu Þrátt fyrir árangurinn sem hefur náðst í að vinda ofan af eyðingu ósonlagsins hefur útfjólublá geislun aukist um allt að fimmtung sums staðar í Evrópu frá miðjum 10. áratug síðustu aldar. Alþjóðaveðurfræðistofnunin bendir á mikilvægi áframhaldandi vöktunar á lofthjúpi jarðar til þess að fylgjast með styrk ósóneyðandi efna. Þó að verulega hafi verið dregið úr losun bannaðra klórflúorefna hafi menn orðið varir við óvænta losun á ósoneyðandi efnum á undanförnum árum. Mælistöðvum hefur fækkað frá fyrsta áratug aldarinnar. Þær sem hafi verið settar upp á undanförnum árum fylgist frekar með loftgæðum en styrk ósons í heiðhvolfinu.
Umhverfismál Sólin Heilbrigðismál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira