Haukar og Selfoss leika til úrslita Valur Páll Eiríksson skrifar 15. september 2026 19:41 Haukar unnu 2. deildina í sumar og geta lyft öðrum bikar í Laugardalnum á föstudag. Mynd/Haukar Haukar og Selfoss munu spila til úrslita í Gatorade-bikar Fótbolta.net, neðrideildarbikarnum. Liðin unnu undanúrslitaleiki sína í kvöld og mætast á þjóðarleikvanginum á föstudag.
Bikarkeppnin á sér fyrirmynd á Englandi í EFL-bikarnum, sem var gjarnan kölluð Framrúðubikarinn þegar Stoke í Íslendingaeigu keppti í henni og vann undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar um aldamótin. Keppnin hér á landi fer fram í fjórða sinn í ár en Víðir vann hana fyrst 2023, Selfoss vann hana 2024 og Víkingur Ólafsvík í fyrra. Í henni keppa lið í 2.-5. deild og segja má að tvö bestu liðin þeirra á meðal mætist í úrslitum í ár en Haukar og Selfoss höfnuðu í 1. og 2. sæti 2. deildarinnar og eru því bæði á leið í Lengjudeildina að ári. Selfoss vann öruggan 5-0 heimasigur á Álftanesi í kvöld. Guðmundur Stefánsson skoraði tvö fyrstu mörk Selfyssinga og þeir Viðar Örn Kjartansson, Aron Fannar Birgisson og Gestur Helgi Snorrason skoruðu eitt hver. Álftanes lék manni færri frá 26. mínútu þar sem Hilmir Ingi Jóhannesson fékk að líta rautt spjald. Spennan var meiri á Blönduósi þar sem Haukar sóttu Kormák/Hvöt heim í hinum undanúrslitaleiknum. Pol Morlans Martin kom heimamönnum yfir rétt fyrir hálfleik en Daði Snær Ingason jafnaði á 71. mínútu. Liðin fengust ekki aðskilin eftir 90 mínútur og ekki heldur eftir framlengingu. Haukar skoruðu úr fjórum spyrnum en Kormákur/Hvöt aðeins þremur og því mætast Haukar og Selfoss í úrslitum. Selfoss getur unnið titilinn í annað sinn, eftir að hafa unnið 2024, en Haukar eru í úrslitum í fyrsta sinn. Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli á föstudaginn kemur. Upplýsingar um úrslit og markaskorara fengnar af Fótbolti.net.
Haukar UMF Selfoss Íslenski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Sjá meira