EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar 17. september 2026 13:15 Í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst höfnuðu 52,8% kjósenda því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki var kosið um EES-samninginn og því væri rangt að túlka niðurstöðuna sem sérstaka staðfestingu á honum. EES er hins vegar áfram sá rammi sem tryggir Íslandi þátttöku í innri markaði Evrópu. Nú þegar aðildarviðræðum hefur verið hafnað er eðlilegt að umræða hefjist um framtíð EES og hvort aðrir kostir standi Íslandi til boða. Þar hefur meðal annars verið nefndur víðtækur fríverslunarsamningur við Evrópusambandið. Slíka kosti á að ræða. En þá þarf að byrja á einfaldri staðreynd sem Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, bendir á í grein sinni Iceland - EU: It Takes Two to Tango. Ísland getur ákveðið hvaða samning það vill en það getur ekki ákveðið hvaða samning Evrópusambandið vill gera við Ísland. Hvaða skilyrði fylgja markaðsaðgangi? EES-samningurinn veitir Íslandi víðtækan aðgang að innri markaði ESB. Honum fylgir sameiginlegt regluverk á þeim sviðum sem samningurinn tekur til, eftirlit ESA og EFTA-dómstóllinn innan EFTA-stoðarinnar. Hugmyndin um fríverslunarsamning verður því ekki metin eingöngu út frá því hvaða regluverk Ísland vildi helst hafa. Spyrja verður hversu mikinn markaðsaðgang slíkur samningur gæti veitt og ekki síður hvaða stofnanalegu skilyrði ESB myndi setja fyrir þeim aðgangi. Bæði Bretland og Sviss sýna hvers vegna þessi spurning skiptir máli. Bretar vilja bæta aðgang sinn að innri markaðnum en hafa jafnframt viljað halda fast í eina af rauðu línum Brexit, að lúta ekki lögsögu Evrópudómstólsins. Svisslendingar hafa um árabil glímt við stofnanalega hlið samskipta sinna við ESB. Vandinn hverfur nefnilega ekki þótt samningurinn heiti fríverslunarsamningur. Eftir því sem markaðssamþættingin verður meiri verður ríkari þörf fyrir sameiginlegar reglur og kerfi sem tryggir túlkun þeirra og sker úr ágreiningi. EES leysir þann vanda með tveggja stoða kerfinu. EFTA-ríkin lúta ekki beinni lögsögu Evrópudómstólsins heldur EFTA-dómstólnum á þeim sviðum sem EES tekur til. Í hagfræði er stundum sagt að enginn hádegisverður sé ókeypis. Það á ágætlega við hér. Meira svigrúm frá sameiginlegu reglu- og stofnanakerfi kann að vera mögulegt, en verðið gæti verið minni markaðsaðgangur. Það gæti einnig falist í því að ESB gerði kröfu um stofnanalegt fyrirkomulag þar sem Evrópudómstóllinn hefði úrslitavald um túlkun ESB-réttar, líkt og stofnanaspurningin í samskiptum ESB og Sviss sýnir. Það er því ekki sjálfgefið að leiðin frá EES og EFTA-dómstólnum leiði til aukins svigrúms gagnvart Evrópudómstólnum. Umræðan um framtíð EES Umræðan um framtíð EES þarf þess vegna að vera vönduð. Það er ekkert óeðlilegt við að endurmeta samning sem hefur verið í gildi í meira en þrjá áratugi eða skoða hvort betri kostir séu í boði. En það skiptir máli hvernig sú umræða þróast. Ef sú niðurstaða festist í sessi að EES sé ekki lengur fullnægjandi rammi fyrir Ísland breytist pólitíska spurningin. Þá verður ekki aðeins rætt um hvort fríverslunarsamningur gæti komið í stað EES. Stuðningsmenn ESB-aðildar munu eðlilega benda á sinn valkost: fulla aðild að Evrópusambandinu og þar með fulla þátttöku í innri markaðnum. Þess vegna þarf að gera meiri kröfur til hugmyndarinnar um fríverslunarsamning en að hann líti vel út á teikniborðinu. Hvaða markaðsaðgangur fengist? Hvaða stofnanakerfi fylgdi honum? Og síðast en ekki síst: Er Evrópusambandið reiðubúið að gera slíkan samning? Í umræðunni um framtíð EES skiptir því mestu að meta ekki aðeins hvaða kostir virðast álitlegir, heldur hvaða kostir standa raunverulega til boða og hvaða afleiðingar fylgja þeim. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun