Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. september 2026 16:47 Jóhanna segir málið snúast um matvælaöryggi. aðsend/Vilhelm Nemendur við Garðyrkjuskólann á Reykjum krefjast úrbóta á stöðu námsins. Þeir sendu menntamálaráðherra erindi í vor en hafa engin svör fengið. Nemandi hvetur stjórnvöld til að láta málið sig varða enda sé matvælaöryggi undir.
Fyrir fjórum árum fluttist starfsemi Garðyrkjuskólans frá Landbúnaðarháskóla Íslands til Fjölbrautarskóla Suðurlands. Við þá breytingu átti fjármagn að fylgja en Jóhanna Íris Hjaltadóttir, garðyrkjufræðingur og nemandi við skólann, segir að fjármagn sé langt undir lágmarkskostnaði. Staðan sé alvarleg og nemendur fari fram á úrbætur. Rúður geti hrunið þegar hvessir „Það voru ellefu starfandi starfsmenn síðasta vor. Tveir þeirra eru núna hættir út af aldri og það var enginn ráðinn inn í staðinn. Skrúðgarðyrkjuvinnuaðstaðan okkar er sem sagt gamalt gróðurhús sem átti að vera til bráðabirgða en það eru komin 20 ár síðan. Þetta hús er bara að hruni komið og við megum ekki nota það þegar það er hvasst úti, af því að það geta hrunið úr því rúður og á okkur.“ Hún segir námið gríðarlega sérhæft enda sé áhersla lögð á íslenskar aðstæður og veðuröfga og geta nemendur ekki sótt sömu menntun erlendis. Jóhanna sendi erindi á Ingu Sæland menntamálaráðherra í vor en hefur engin svör fengið. „Okkur líður svolítið eins og við séum bara einhver olnbogabörn. Það er bara verið að bíða eftir að við gefumst upp.“ Tvær námsbrautir hafi ekki verið kenndar þrátt fyrir að þátttaka hafi verið nægjanleg þar sem ekki var fjármagn til að halda þeim úti að sögn Jóhönnu. „Til dæmis stendur tilraunahúsið tómt að mestu leyti núna. Mér skilst að það eigi ekki að vera neinar tilraunir í vetur. Það bitnar beint á nemendum.“ Skorar á Ingu Sæland Hún skorar á stjórnvöld að láta sig málið varða enda sé matvælaöryggi undir að hennar mati. „Ef allt fer til fjandans, þurfum við þá ekki að hafa fólk sem getur búið til matvæli á Íslandi við íslenskar aðstæður?“
Garðyrkja Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Sjá meira