Sport

Hvað er eigin­lega að Man. Utd?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Michael Carrick, stjóri Man. Utd, er í brekku í upphafi leiktíðar.
Michael Carrick, stjóri Man. Utd, er í brekku í upphafi leiktíðar. vísir/getty

Vikan er búin að vera vond hjá Man. Utd. Tapa fyrir tíu leikmönnum Man. City og svo kastaði liðið frá sér 2-0 stöðu gegn Brighton í gær.

Það eru 50 ár síðan Man. Utd kastaði frá sér 2-0 stöðu á Old Trafford og tapaði. Enn eitt árið er allt á leiðinni í skrúfuna hjá Man. Utd.

Það voru teikn á lofti í lok síðustu leiktíðar. Liðið var að spila ljómandi vel og tók mörg skref fram á við. Leikmenn sögðust elska þjálfarann Michael Carrick sem fékk að launum nýjan samning.

Aðvörunarbjöllur byrjuðu að klingja strax í fyrsta leik tímabilsins. Léleg og andlaus frammistaða gegn nýliðum. Ekki alveg það sem búist var við. Eins og staðan er núna stefnir í annað vonbrigðatímabil.

Svo ræddi Besta sætið íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu. Af hverju það er aðeins búið að selja rúmlega þúsund miða á næsta heimaleik þó svo hægt sé að fá ódýrari miða en á leik í Bestu deildinni. Líka af hverju sé ekki gert meira til að fá fólk á völlinn og tengja liðið betur við þjóðina.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×