Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar 21. september 2026 15:30 Í dag, 21. september er alþjóðadagur friðarmenningar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þema dagsins felst í því að temja sér friðsamlegt hugarfar og æfa sættir. Hugsum um orðið sátt. Samfélagið þarf að leggja rækt við þær hugsjónir sem fela í sér kærleika, virðingu, einlæg samskipti og skuldbindingu við aðra. Að öðrum kosti getur farið illa fyrir hugsjónum eins og lýðræði, jafngildi, virðingu og samábyrgð. Helstu lífsgildin geta glatast ef tilfinningar einstaklinganna sem áður gáfu lýðræðinu líf eru ekki lengur ræktaðar. Þá dvínar hugsjónin í brjóstinu. Sátt er gagnkvæmur friður, ekki þvingaður og deiluaðilar eiga að vera ánægðir. Að vera sátt er að vera glöð með niðurstöðuna. Sátt er að friðmælast eftir að hafa komið til móts hvort við annað. Hugsjónin um frið er hugsjón um sátt og útkljáðar deilur. Sáttmáli hlýtur ævinlega að vera æðsta takmark þjóða og einstaklinga og felur í sér ákvörðun um að lifa í sátt og samlyndi. Hann er ánægjulegt friðarband sem enginn skyldi slíta nema við óbærilegar aðstæður. Þau sem ná ekki sáttum bera sökina áfram á milli sín. Sýn huga þeirra er ekki um betri heim, því þau leyfa sökinni að lifa góðu lífi og bíða færis. Sátt krefst aftur á móti vits, þroska og þolinmæði. Friður og réttlæti er eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.SÞ Sátt tveggja einstaklinga eða þjóða er alltaf besti kosturinn því að gleðin yfir niðurstöðunni er sem græðandi smyrsl á sárin. „Sátt er best þeim er saman eiga að búa“. Sátt er því göfug hugsjón sem krefst skilnings, dygða og ræktunar tilfinninga. Að vera sáttasemjari er framkoma og færni sem hægt er að læra og tileinka sér. Sérstök skrásetning mannréttinda Sameinuðu þjóðanna var ekki gerð fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina og samþykkt árið 1948. Formaður nefndarinnar var sáttasemjarinn Eleanor Roosevelt sem sætti ólík sjónarmið innan hópsins. Hún kallaði yfirlýsinguna Magna Carta alls mannkyns. Dagur friðarmenningar hjá Sameinuðu þjóðunum var samþykktur árið 1981 og árið 2001 var ákveðið að hann yrði árlega 21. september. Saga dagsins hófst þó fyrr eða árið 1954 þegar Sameinuðu þjóðirnar fengu að gjöf japönsku friðarbjölluna sem komið var fyrir í höfuðstöðvunum í New York. Henni er hringt í dag og minnt er á að við getum öll lagt okkar fram til að stuðla að friði. Við þurfum ekki að bíða. Boðum frið hvern dag, alls staðar fyrir okkur öll. Ekki aðeins í lokuðum fundasölum heldur einnig heima fyrir og í grasrótarstarfi. Höfundur er rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Hersveinn Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Kristný Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Í dag, 21. september er alþjóðadagur friðarmenningar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þema dagsins felst í því að temja sér friðsamlegt hugarfar og æfa sættir. Hugsum um orðið sátt. Samfélagið þarf að leggja rækt við þær hugsjónir sem fela í sér kærleika, virðingu, einlæg samskipti og skuldbindingu við aðra. Að öðrum kosti getur farið illa fyrir hugsjónum eins og lýðræði, jafngildi, virðingu og samábyrgð. Helstu lífsgildin geta glatast ef tilfinningar einstaklinganna sem áður gáfu lýðræðinu líf eru ekki lengur ræktaðar. Þá dvínar hugsjónin í brjóstinu. Sátt er gagnkvæmur friður, ekki þvingaður og deiluaðilar eiga að vera ánægðir. Að vera sátt er að vera glöð með niðurstöðuna. Sátt er að friðmælast eftir að hafa komið til móts hvort við annað. Hugsjónin um frið er hugsjón um sátt og útkljáðar deilur. Sáttmáli hlýtur ævinlega að vera æðsta takmark þjóða og einstaklinga og felur í sér ákvörðun um að lifa í sátt og samlyndi. Hann er ánægjulegt friðarband sem enginn skyldi slíta nema við óbærilegar aðstæður. Þau sem ná ekki sáttum bera sökina áfram á milli sín. Sýn huga þeirra er ekki um betri heim, því þau leyfa sökinni að lifa góðu lífi og bíða færis. Sátt krefst aftur á móti vits, þroska og þolinmæði. Friður og réttlæti er eitt af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.SÞ Sátt tveggja einstaklinga eða þjóða er alltaf besti kosturinn því að gleðin yfir niðurstöðunni er sem græðandi smyrsl á sárin. „Sátt er best þeim er saman eiga að búa“. Sátt er því göfug hugsjón sem krefst skilnings, dygða og ræktunar tilfinninga. Að vera sáttasemjari er framkoma og færni sem hægt er að læra og tileinka sér. Sérstök skrásetning mannréttinda Sameinuðu þjóðanna var ekki gerð fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina og samþykkt árið 1948. Formaður nefndarinnar var sáttasemjarinn Eleanor Roosevelt sem sætti ólík sjónarmið innan hópsins. Hún kallaði yfirlýsinguna Magna Carta alls mannkyns. Dagur friðarmenningar hjá Sameinuðu þjóðunum var samþykktur árið 1981 og árið 2001 var ákveðið að hann yrði árlega 21. september. Saga dagsins hófst þó fyrr eða árið 1954 þegar Sameinuðu þjóðirnar fengu að gjöf japönsku friðarbjölluna sem komið var fyrir í höfuðstöðvunum í New York. Henni er hringt í dag og minnt er á að við getum öll lagt okkar fram til að stuðla að friði. Við þurfum ekki að bíða. Boðum frið hvern dag, alls staðar fyrir okkur öll. Ekki aðeins í lokuðum fundasölum heldur einnig heima fyrir og í grasrótarstarfi. Höfundur er rithöfundur.
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun