Skoðun

Ein­eltið byrjar kannski við eld­hús­borðið!

Birta Róbertsdóttir skrifar

Við tölum mikið um einelti, félagslega útskúfun, fordóma og mikilvægi þess að öllum börnum líði vel. Við tölum um að kenna börnum virðingu og umburðarlyndi og að enginn eigi að þurfa að standa einn. Við viljum að börnin okkar séu góðir vinir, sýni öðrum skilning og taki vel á móti þeim sem eru nýir í hópnum.

En hversu oft hugsum við út í hvaða áhrif okkar eigin orð og hegðun hafa á það hvernig börnin okkar koma fram við aðra?

Hvað ef við foreldrarnir erum sjálf hluti af vandanum?

Það getur verið óþægilegt að horfast í augu við, en áhrif foreldra á félagslega stöðu barna eru oft meiri en við gerum okkur grein fyrir. Viðhorf okkar, samtöl og umræða um önnur börn geta haft mikil áhrif á það hvernig börnin okkar sjá aðra og koma fram við þá. Þannig getum við, jafnvel ómeðvitað átt þátt í að skapa og viðhalda þeirri útilokun sem við segjumst vilja koma í veg fyrir.

Við þekkjum líklega flest hvernig orðspor getur myndast. Barn fær á sig ákveðna ímynd og er stimplað sem erfitt, leiðinlegt, skrítið eða jafnvel vandamál. Sú ímynd getur fylgt því lengi, jafnvel þótt aðstæður breytist, barnið þroskist eða fái tækifæri til að byrja upp á nýtt.

En hverjir eru það sem halda þessu orðspori á lífi?

Það eru ekki alltaf börnin ein sem viðhalda þessu orðspori. Foreldrar geta líka átt stóran þátt í því, til dæmis með því að ræða önnur börn á neikvæðan hátt, draga ályktanir um þau og miðla eigin viðhorfum áfram til barnanna sinna. Það sem byrjar sem samtal milli tveggja foreldra getur smám saman haft áhrif á viðhorf heils vinahóps. Börnin hlusta, taka eftir og móta sínar eigin skoðanir út frá því sem þau heyra og sjá. Þau læra hverjir eru samþykktir í hópnum og hverjir ekki. Við getum ekki ætlast til þess að börnin okkar sýni öðrum virðingu ef við erum ekki tilbúin að gera það sjálf.

Það er auðvelt að benda á hegðun annarra barna, gagnrýna framkomu þeirra og réttlæta hvers vegna okkar eigin börn vilji ekki umgangast þau. En gefum við okkur alltaf tíma til að skoða heildarmyndina?

Erum við að kenna börnunum okkar að leysa ágreining og mynda sér eigin skoðanir eða læra þau að dæma aðra út frá því sem þau heyra frá okkur? Fá þau tækifæri til að kynnast fólki af eigin raun eða taka þau upp gamlar skoðanir og orðspor annarra?

Auðvitað eru samskipti barna flókin. Börn geta sært hvert annað, lent í árekstrum og átt erfitt með að finna sinn stað í hópnum, slíkt þarf að taka alvarlega. Ekki er öll félagsleg útilokun einelti, en fordómar, neikvæð umræða og endurtekin útilokun geta haft alvarleg áhrif á líðan og stöðu barns í hópnum. Það er því mikilvægt að greina á milli þess að takast á við raunverulegan vanda í samskiptum og þess að festa neikvæða ímynd á barn sem getur fylgt því áfram, jafnvel löngu eftir að aðstæður hafa breyst.

Við þurfum líka að horfa í eigin barm og velta fyrir okkur hvaða fordóma við berum sjálf. Börn alast upp við ólíkar aðstæður, í ólíkum fjölskyldum og með mismunandi menningarlegan bakgrunn. Þau tjá sig á mismunandi hátt, hafa ólíka reynslu og eru misjafnlega stödd í félagslegum samskiptum. Það sem okkur kann að finnast óvenjulegt eða framandi er ekki þar með sagt rangt. Við megum ekki láta ólíkan bakgrunn, fjölskylduaðstæður eða menningu verða til þess að barn sé dæmt, stimplað eða útilokað úr hópnum.

Það er líka mikilvægt að við hættum að gera ráð fyrir að okkar eigið barn sé alltaf saklausi aðilinn í samskiptum við aðra. Börnin okkar geta líka tekið þátt í að útiloka aðra, dreifa slúðri eða sýna særandi hegðun. Þau geta verið þau sem skilja aðra út undan eða gera öðrum erfitt fyrir að finna sinn stað í hópnum, jafnvel án þess að við sem foreldrar gerum okkur grein fyrir því. Það er ekki alltaf auðvelt að horfast í augu við að okkar eigið barn geti átt þátt í því að öðrum líði illa en það er engu að síður hluti af ábyrgð okkar sem foreldra að geta viðurkennt það og brugðist við.

Foreldrahlutverkið snýst ekki bara um að standa með eigin börnum og verja þau, heldur líka um að kenna þeim að taka ábyrgð á eigin hegðun, sýna öðrum samkennd og bera

virðingu fyrir fólki. Það felur meðal annars í sér að læra að setja sig í spor annarra og skilja að orð og gjörðir geta haft meiri áhrif en við gerum okkur oft grein fyrir.

Barn sem hefur átt erfitt á skilið að fá tækifæri til að byrja upp á nýtt. Barn sem hefur gert mistök á skilið að fá að læra af þeim og fá tækifæri til að sýna að það geti gert betur. Barn sem hefur fengið á sig slæmt orðspor á ekki að þurfa að eyða skólaárunum í að reyna að sanna að það sé ekki sú manneskja sem aðrir hafa ákveðið að það sé.

Við getum ekki talað um að uppræta einelti og félagslega útskúfun á sama tíma og við eigum sjálf þátt í að viðhalda henni. Kannski þurfum við foreldrar oftar að staldra við áður en við tölum um önnur börn, hugsa um hvað börnin okkar heyra, hvaða viðhorf þau tileinka sér og hvaða skilaboð við sendum þeim með eigin orðum og hegðun. Því útilokun byrjar ekki alltaf í skólanum eða vinahópnum, stundum byrjar hún í samtölum fullorðinna, við eldhúsborðið, í foreldrahópum eða í skilaboðum sem okkur finnst kannski saklaus. En þau eru ekki endilega saklaus í augum barnanna sem heyra þau. Þau geta mótað viðhorf, haft áhrif á vináttu og jafnvel orðið upphafið að því að barn sé skilið út undan.

Við erum fyrirmyndir barnanna okkar. Við getum ekki kennt þeim að vera hluti af lausninni ef við erum sjálf hluti af vandanum.

Að lokum þurfum við kannski að spyrja okkur: Erum við að kenna börnunum okkar að taka öðrum opnum örmum, sýna virðingu og gefa fólki tækifæri eða erum við ómeðvitað að kenna þeim hverjum þau eigi að snúa baki við?

Höfundur tveggja barna móðir með BA-gráðu í uppeldis- og menntunarfræði og meistaranemi í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×