Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. september 2026 11:18 Einn þeirra sex sem leiddur var fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Vísir/Viktor Freyr Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir sex eru allir íslenskir. Samkvæmt heimildum fréttastofu snýr rannsókn lögreglu fyrst og fremst að peningaþvætti og fíkniefnasölu. Meðal þeirra sem handteknir voru í gær eru aðilar sem hafa hlotið þunga dóma fyrir innflutning og framleiðslu fíkniefna, ýmist kókaíni eða amfetamíni, þó nokkuð sé um liðið síðan sumir þeirra voru handteknir. Aðgerðir lögreglu í gær voru samstilltar og var dæmi um að einstaklingur væri handtekinn á Litla-Hrauni. Sá heitir Atli Freyr Fjölnisson og er meðal ákærðu í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Atli Freyr hlaut fjögurra ára dóm árið 2016 fyrir aðild að smygli á níu kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af MDMA í umdeildu máli. Þá var framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki í Reykjavík handtekinn í aðgerðum lögreglu. Sá var leiddur út af vinnustaðnum í lögreglufylgd en sneri aftur til vinnu síðar um daginn. Uppfært: Bílaumboðið BL hefur greint frá því að starfsmaður hjá fyrirtækinu sé kominn í leyfi vegna málsins. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að húsleit hafi verið framkvæmd á nokkrum stöðum og bæði lagt hald á fjármuni og fíkniefni. Rannsókn málsins er sögð mjög umfangsmikil og samkvæmt heimildum fréttastofu teygir hún sig aftur til ársins 2025. Lögregla segist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. Tilkynningu frá lögreglu má sjá hér að neðan. Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í viðamiklar aðgerðir í umdæminu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt var hald á bæði fjármuni og fíkniefni. Sex voru síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði, og nær það til föstudags, en hinir sömu eru allir Íslendingar. Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Lögreglumál Fíkniefnabrot Reykjavík Tengdar fréttir Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. 22. september 2026 19:15 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Samkvæmt heimildum fréttastofu snýr rannsókn lögreglu fyrst og fremst að peningaþvætti og fíkniefnasölu. Meðal þeirra sem handteknir voru í gær eru aðilar sem hafa hlotið þunga dóma fyrir innflutning og framleiðslu fíkniefna, ýmist kókaíni eða amfetamíni, þó nokkuð sé um liðið síðan sumir þeirra voru handteknir. Aðgerðir lögreglu í gær voru samstilltar og var dæmi um að einstaklingur væri handtekinn á Litla-Hrauni. Sá heitir Atli Freyr Fjölnisson og er meðal ákærðu í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Atli Freyr hlaut fjögurra ára dóm árið 2016 fyrir aðild að smygli á níu kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af MDMA í umdeildu máli. Þá var framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki í Reykjavík handtekinn í aðgerðum lögreglu. Sá var leiddur út af vinnustaðnum í lögreglufylgd en sneri aftur til vinnu síðar um daginn. Uppfært: Bílaumboðið BL hefur greint frá því að starfsmaður hjá fyrirtækinu sé kominn í leyfi vegna málsins. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að húsleit hafi verið framkvæmd á nokkrum stöðum og bæði lagt hald á fjármuni og fíkniefni. Rannsókn málsins er sögð mjög umfangsmikil og samkvæmt heimildum fréttastofu teygir hún sig aftur til ársins 2025. Lögregla segist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu. Tilkynningu frá lögreglu má sjá hér að neðan. Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í viðamiklar aðgerðir í umdæminu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt var hald á bæði fjármuni og fíkniefni. Sex voru síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði, og nær það til föstudags, en hinir sömu eru allir Íslendingar. Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í viðamiklar aðgerðir í umdæminu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Framkvæmdar voru húsleitir og handtökur á nokkrum stöðum og lagt var hald á bæði fjármuni og fíkniefni. Sex voru síðan úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði, og nær það til föstudags, en hinir sömu eru allir Íslendingar. Rannsókn málsins er mjög umfangsmikil, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Reykjavík Tengdar fréttir Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. 22. september 2026 19:15 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. 22. september 2026 19:15