Edda með tárin í augunum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. september 2026 16:08 Edda Björgvins og Halla í góðum gír. Edda Björgvinsdóttir segist vera með tárin í augunum af þakklæti en hún var heiðruð á setningu UngRIFF, kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni og veitti Halla Tómasdóttir forseti Íslands henni heiðursverðlaunin í Smárabíó. Þá var hátíðin einnig sett í Króksbíói á Sauðárkróki.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum kemur fram að um þúsund skólabörn hafi gert sér ferð í Smárabíó í Kópavogi og í Króksbíó á Sauðárkróki. Halla Tómasdóttir forseti hélt ræðu þar sem hún nefndi mikilvægi þess að auka kvikmyndalæsi barna. „Það sem er svo magnað við kvikmyndir er að þær hjálpa okkur að skilja okkur sjálf, heiminn og aðra.” sagði Halla. Halla veitti Eddu leikkonu heiðursverðlaun UngRIFF fyrir leik sinn í gegnum árin.Ungmennaráð hátíðarinnar valdi verðlaunahafann og sögðu þau Eddu meðal annars vera „fyrirmynd allrar þjóðarinnar.“ Halla minntist þar að auki á að það eru ekki aðeins börnin í salnum þennan daginn sem fá að alast upp við leik hennar, heldur foreldrar þeirra líka og er Edda því líkt og brú milli kynslóða. „Ég er djúpt hrærð og þakklát fyrir þessi heiðursverðlaun UngRIFF,” sagði Edda í þakkarræðu sinni. „UngRiff er magnað og merkilegt framlag til skapandi greina og það telst til tíðinda að það skuli vera sérstök kvikmyndahátíð fyrir börn og ungmenni á Íslandi.“ Þá minntist Edda á mikilvægi þess að fjárfesta í menningarviðburðum og list. „Þetta er ómetanleg menningarstarf sem UngRIFF býður uppá, þar sem ekkert vantar – nema helst fjármagn! Fjárfestum í börnum og ungmennum því annars er engin framtíð listsköpunar á Íslandi.“ Ungmennaráð RIFF í ár skipa Baldur Tumi Einarsson, Áshildur Herdís Gunnlaugsdóttir, Rúnar Már Jónasson, Róbert Kári Örnólfsson, Sverrir Þór Leifsson og Anna Signý Sæmundsdóttir. Öll eru þau nemendur úr Grundarskóli á Akranesi og Menntaskólanum í Reykjavík. Þau hafi staðið með prýði í skipulagningu með verkefnastjóra UngRIFF, Salvöru Bergmann, í allt sumar og völdu þau meðal annars opnunarmyndina fyrir unglingastigið; Skateboarding Is Not For Girls (ísl Bretti og brúðarkaup). Myndin fyrir yngri bekkina sem sýnd var í morgun var ekki síðri, en það var teiknimyndin Lucy Lost (ísl, Týnda stúlkan) sem var að auki talsett á íslensku af Þórunni Clausen og Ólafi Þorvaldz í Upptekið með Gunnari Árnasyni. Skólarnir sem mættu í Smárabíó og fylltu alla fjóra salinu voru: Víðistaðaskóli, Laugarnesskóli, Vatnsendaskóli, Smáraskóli, Álfhólsskóli, Selásskóli, Ölduselsskóli, Húsaskóli, Breiðholtsskóli. Halla Tómasdóttir flytur ræðu sína fyrir fullum sal barna. Þétt setið í Smárabíói í morgun. Edda Björgvins og Halla Tómasdóttir ásamt ungmennaráðinu. Kátir krakkar á opnunarhátíð UngRIFF. Hákon Örn Helgason var kynnir. Halla Tómasdóttir, Evva Björgvins og Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF. Edda Björgvins tekur við verðlaunum frá Höllu Tómasdóttur fyrir hönd UngRIFF. Krakkar á leið í bíó og spenningur í loftinu. Halla Tómasdóttir heilsar ungmennaráðinu.
Samkvæmislífið RIFF Bíó og sjónvarp Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Ólétt 52 ára Lífið Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Lífið Fleiri fréttir „Tárin streymdu niður vangann á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Sjá meira