50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 14:46 Kristján Freyr Kristjánsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri 50skills Aðsend Fyrirtækið 50skills hefur tryggt sér um 729 milljónir íslenskra króna, eða sex milljónir Bandaríkjadala, í fjármögnun til áframhaldandi vaxtar og þróunar á sviði sjálfvirknivæðingar mannauðsferla.
Í tilkynningu kemur fram að fjármagnið verði nýtt til að fjölga starfsfólki í sölu- og markaðsmálum og efla uppbyggingu notendasamfélags 50skills. Jafnframt verði áfram fjárfest í þróun lausnarinnar. Frumtak, Swiss Post Ventures, Avant og bandaríska fjárfestingafélagið DRD Investments leiddu fjármögnunina í sameiningu samkvæmt tilkynningu. Meðal viðskiptavina 50skills hér á landi eru Icelandair, Festi, Bláa lónið, Eimskip, Domino’s, Isavia og Orkuveita Reykjavíkur, auk opinberra aðila á borð við utanríkisráðuneytið og Reykjavíkurborg. 50skills hjálpar mannauðsteymum að sjálfvirknivæða ferla, nýta gervigreind, tengja saman kerfi og draga úr handvirkri umsýslu. Fyrirtæki á Íslandi, Norðurlöndum og Bretlandi hafa framkvæmt yfir fjórar milljónir sjálfvirkra aðgerða í 50skills á undanförnum 12 mánuðum samkvæmt tilkynningu. Teymið sem vinnur að baki 50skills.Aðsend Minni handavinna Í tilkynningu segir að ávinningurinn birtist meðal annars í verkefnum sem áður kröfðust mikillar handavinnu. Til að mynda hafi Icelandair fært yfir 20 mannauðsferla á stafrænt form og sparað sem nemur fjögurra til fimm mánaða vinnu við umsýslu á ári. Þar séu meðal annars yfir 3.000 kvittanir vegna heilsustyrkja yfirfarnar árlega í 50 skills samkvæmt reglum félagsins. Þá spari Air Atlanta um 50 vinnustundir á viku með sjálfvirkni í einu ferli við afgreiðslu vegabréfsáritana, sem jafngildir meira en einu fullu starfi. Íslandshótel hafi svo stytt afgreiðslutíma umsókna um starfsmannahlunnindi um 80 prósent á 18 hótelum, mál sem áður tóku klukkustundir taka nú aðeins fimm mínútur og í sumum tilvikum þurfi mannauðsteymið ekki lengur að koma að afgreiðslunni. Þá hafi Samskip samræmt mannauðsferla fjögurra dótturfyrirtækja og sjálfvirknivætt móttöku nýliða í ferli sem telur yfir 150 aðgerðir.
Bandaríkin Mannauðsmál Tækni Gervigreind Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Fleiri fréttir Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Sjá meira