Handbolti

Lygi­legt sigur­mark HK í Vest­manna­eyjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Trúgvi var sérstaklega fljótur að átta sig.
Trúgvi var sérstaklega fljótur að átta sig. Mynd/skjáskot úr handboltapassanum.

HK-ingar unnu í kvöld sinn fyrsta leik í Olís-deild karla á tímabilinu og það í fjórðu umferð. Það sem gerir sigurinn enn merkilegri er að liðið vann ÍBV í Vestmannaeyjum á einum erfiðasta útivelli landsins.

Háspenna var í leiknum frá upphafi og réðust úrslitin undir lok leiksins. Þegar um nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum jöfnuðu Eyjamenn 34-34. HK-ingar tóku miðju og Trúgví Hávardsson var fljótur að átta sig og kastaði boltum einfaldlega í markið, ótrúlegar lokasekúndur eins og sjá má hér að neðan.

Handkastid.net birtir brot af markinu á þeirra vefsíðu. 

Færeyingurinn Trúgvi var frábær í liði HK en hann skoraði 10 mörk. Daníel Þór Ingason var markahæstur hjá ÍBV með sjö mörk.

HK því komið með 2 stig í deildinni en Eyjamenn eru með fjögur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×