Handbolti

Sigurður Dan skellti í lás og Stjarnan valtaði yfir Fram

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurður Dan Óskarsson varði 22 skot í marki Stjörnunnar
Sigurður Dan Óskarsson varði 22 skot í marki Stjörnunnar Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Stjarnan vann frábæran átta marka sigur á Fram 37-29 í Mýrinni í Garðabæ í Olís-deild karla í kvöld.

Ísak Logi Einarsson var frábær í liði Stjörnunnar og skoraði hann 10 mörk í leiknum. Jóel Bernburg gerði sjö af línunni og það úr sjö skotum.

Í liði Fram var Theodór Sigurðsson atkvæðamestur með sjö mörk og þar af fjögur af vítalínunni. Sigurður Dan Óskarsson var magnaður í marki Stjörnunnar í kvöld en hann varði 22 bolta eða 45% markvarsla.

Stjarnan vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld og er liðið með þrjú stig eftir fjórar umferðir. Fram er með fjögur stig.

Þá vann Afturelding þægilegan sigur á Selfyssingum 42-34 en hálfleikstölur voru 20-12 og var sigur heimamanna aldrei í hættu.

Oscar Lykke og Ævar Smári Gunnarsson voru báðir með átta mörk fyrir Aftureldingu í leiknum. Jónas Karl Gunnlaugsson skoraði tíu mörk fyrir Selfoss sem er enn án sigurs í deildinni og með eitt stig. Afturelding hefur náði í fimm stig það sem af er og er í toppbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×