Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Sindri Sverrisson skrifar 25. september 2026 14:17 Manchester City er í vanda Vísir/Getty Manchester City verður dæmt sekt í öllum nema einum af 115 ákæruliðum, fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig félaginu verður refsað en til greina koma sektir, stigafrádráttur eða jafnvel brottrekstur úr deildinni. City hlaut ákærurnar fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar árið 2023, eða fyrir þremur og hálfu ári. Óháð nefnd hefur nú komist að niðurstöðu, samkvæmt The Athletic, um að City-menn hafi gerst brotlegir í 114 tilvikum. Tilvikunum má í raun skipta í þrennt. Í fyrsta lagi skortur á samstarfsvilja við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar frá desember 2018 til febrúar 2023. Í öðru lagi með því að dulbúa tekjur sem í raun voru gjafir frá eigendum félagsins sem auglýsingatekjur. Í þriðja lagi með því að greiða starfsfólki, til dæmis leikmönnum eða þjálfurum, laun í gegnum þriðja aðila. Þannig gat félagið virst standast reglur um fjárhagslegt aðhald sem öll félög deildarinnar verða að lúta. Í yfirlýsingu frá City segir að málið sé enn í ferli. Samkvæmt heimildum BBC þykir ljóst að yfirvofandi dómi verði áfrýjað. Fylgst var með gangi mála í vaktinni hér að neðan.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig félaginu verður refsað en til greina koma sektir, stigafrádráttur eða jafnvel brottrekstur úr deildinni. City hlaut ákærurnar fyrir brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar árið 2023, eða fyrir þremur og hálfu ári. Óháð nefnd hefur nú komist að niðurstöðu, samkvæmt The Athletic, um að City-menn hafi gerst brotlegir í 114 tilvikum. Tilvikunum má í raun skipta í þrennt. Í fyrsta lagi skortur á samstarfsvilja við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar frá desember 2018 til febrúar 2023. Í öðru lagi með því að dulbúa tekjur sem í raun voru gjafir frá eigendum félagsins sem auglýsingatekjur. Í þriðja lagi með því að greiða starfsfólki, til dæmis leikmönnum eða þjálfurum, laun í gegnum þriðja aðila. Þannig gat félagið virst standast reglur um fjárhagslegt aðhald sem öll félög deildarinnar verða að lúta. Í yfirlýsingu frá City segir að málið sé enn í ferli. Samkvæmt heimildum BBC þykir ljóst að yfirvofandi dómi verði áfrýjað. Fylgst var með gangi mála í vaktinni hér að neðan.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Sjá meira