Innlent

Húsbíll fauk út af

Árni Sæberg skrifar
Búið var að strengja lögregluborða utan um bílinn þegar lesandi Vísis átti leið hjá í dag.
Búið var að strengja lögregluborða utan um bílinn þegar lesandi Vísis átti leið hjá í dag.

Húsbíll fauk út af Útnesvegi nærri Djúpalónssandi á Snæfellsnesi í gær og hafnaði á hvolfi.

Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af vettvangi. Engin slys hafi orðið á fólki.

Bálhvasst var víða á landinu í gær og rúta með fjörutíu skólabörnum um borð fór út af veginum á Fagradal í gærmorgun. Að sögn Ásmundar var ekki meira um óhöpp vegna veðursins á Vesturlandi í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×