Fótbolti

Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxem­borg

Sindri Sverrisson skrifar
Það er pressa á Arnari Gunnlaugssyni eftir slæma frammistöðu Íslands gegn Eistlandi á laugardaginn.
Það er pressa á Arnari Gunnlaugssyni eftir slæma frammistöðu Íslands gegn Eistlandi á laugardaginn. vísir/Anton

Eftir slæma byrjun í Þjóðadeildinni sátu þeir Arnar Gunnlaugsson og Hákon Arnar Haraldsson fyrir svörum á blaðamannafundi í Lúxemborg í dag, fyrir leikinn við heimamenn annað kvöld. Bein útsending frá fundinum var á Vísi.

Ísland gerði aðeins 1-1 jafntefli við Eistland á Laugardalsvelli á laugardaginn á meðan að Lúxemborg sótti þrjú stig til Búlgaríu með 2-1 sigri. Sigur á morgun gæti því komið Íslandi á topp riðilsins, í C-deild Þjóðadeildarinnar, en tap myndi þýða að Ísland yrði þegar lent fimm stigum á eftir Lúxemborg.

Landsliðsþjálfarinn Arnar og varafyrirliðinn Hákon Arnar svöruðu spurningum blaðamanna í Lúxemborg í dag. Fundinn má sjá í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×