Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 10:03 Á myndbandi má sjá að Daníel Berg og Braga sinnaðist eftir leikinn á Ísafirði um helgina. Skjáskot/Handboltapassinn Handknattleiksdeild Harðar sendi í morgun frá sér yfirlýsingu vegna máls sem kom upp í leik við Stjörnuna og greint var frá á Vísi í morgun. Þar segir að stjórn Stjörnunnar segi ósatt um málið.
Handknattleiksdeild Stjörnunnar sakaði þjálfara Harðar um að hafa haft í hótunum og veist að þjálfara Stjörnunnar í leik 3. flokks karla félaganna á Ísafirði um helgina. Bragi Rúnar Axelsson, starfsmaður Harðar, hafi veist að Daníel Berg Grétarssyni, þjálfara Stjörnunnar, og greindi Handkastið frá því að Bragi hafi hótað Daníel og fjölskyldumeðlimum lífláti. Handknattleiksdeild Harðar segir í yfirlýsingu þær ásakanir vera af og frá. „Það er miður þegar fréttir eru sagðar einhliða, eingöngu frá sjónarhóli annars aðilans. Það rýrir fréttagildi þeirra og trúverðugleika,“ segir í yfirlýsingu Harðar. Þar segir jafnframt: „Hörður hafnar alfarið fullyrðingum um að aðstoðarþjálfari félagsins hafi hótað þjálfara Stjörnunnar eða fjölskyldu hans lífláti. Það er ósatt. Ásökunin kemur frá þjálfara Stjörnunnar einum og ekkert vitni styður hana. Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu án nokkurrar stoðar. Rétt skal vera rétt. Það er engum til framdráttar að skálda málsatvik,“ segir í yfirlýsingunni sem má sjá í heild neðst í fréttinni. Þjálfari Stjörnunnar hafi hagað sér ósæmilega Í ofanálag er áðurnefndur Daníel Berg, þjálfari Stjörnunnar, sakaður um ósæmilega hegðun af Harðarmönnum. „Samkvæmt vitnum viðhafði þjálfari Stjörnunnar, Daníel Berg Grétarsson, ítrekað mjög ljót ummæli í leiknum um leikmenn Harðar, þjálfara og aðstoðarþjálfara Harðar. Sum ummælin féllu í áheyrn barna og fjöldi vitna var að þessari hegðun hans,“ segir í yfirlýsingunni. „Að leik loknum kreisti þjálfari Stjörnunnar hönd aðstoðarþjálfara Harðar og ýtti harkalega í bringu hans. Aðstoðarþjálfari Harðar losaði sig frá á klaufalegan hátt. Hann átti ekki að stugga við þjálfara Stjörnunnar. Það var rangt og hann hefur viðurkennt það. Hann bað þjálfara Stjörnunnar afsökunar strax að leik loknum en fékk engin svör,“ segir þar enn fremur. Önnur tilkynning á borð HSÍ Stjarnan tilkynnti málið til HSÍ en í yfirlýsingu Harðar segir að Ísafjarðarfélagið muni jafnframt tilkynna meint brot Stjörnumanna til sambandsins. „Hörður mun tilkynna framkomu þjálfara Stjörnunnar til HSÍ og samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Félagið mun vinna með HSÍ að meðferð málsins í heild sinni og vísar á vitni máli sínu til stuðnings,“ segir í yfirlýsingunni sem má sjá að neðan. Yfirlýsing handknattleiksdeildar Harðar Vegna fréttaflutnings og yfirlýsingar Stjörnunnar um atvik eftir leik Harðar og Stjörnunnar 2 í 3. flokki karla á Ísafirði vill félagið koma eftirfarandi á framfæri. Yfirlýsing Stjörnunnar gefur ekki rétta mynd af því sem gerðist. Það er miður þegar fréttir eru sagðar einhliða, eingöngu frá sjónarhóli annars aðilans. Það rýrir fréttagildi þeirra og trúverðugleika. Hörður hafnar alfarið fullyrðingum um að aðstoðarþjálfari félagsins hafi hótað þjálfara Stjörnunnar eða fjölskyldu hans lífláti. Það er ósatt. Ásökunin kemur frá þjálfara Stjörnunnar einum og ekkert vitni styður hana. Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu án nokkurrar stoðar. Rétt skal vera rétt. Það er engum til framdráttar að skálda málsatvik. Samkvæmt vitnum viðhafði þjálfari Stjörnunnar, Daníel Berg Grétarsson, ítrekað mjög ljót ummæli í leiknum um leikmenn Harðar, þjálfara og aðstoðarþjálfara Harðar. Sum ummælin féllu í áheyrn barna og fjöldi vitna var að þessari hegðun hans. Að leik loknum kreisti þjálfari Stjörnunnar hönd aðstoðarþjálfara Harðar og ýtti harkalega í bringu hans. Aðstoðarþjálfari Harðar losaði sig frá á klaufalegan hátt. Hann átti ekki að stugga við þjálfara Stjörnunnar. Það var rangt og hann hefur viðurkennt það. Hann bað þjálfara Stjörnunnar afsökunar strax að leik loknum en fékk engin svör. Aðstoðarþjálfari Harðar er sjálfboðaliði. Launaðir starfsmenn íþróttahreyfingarinnar hafa enga heimild til að veitast að sjálfboðaliðum með hótunum og niðrandi orðum, eins og þjálfari Stjörnunnar gerði í vitna viðurvist, og því síður að ungum leikmönnum annarra liða. Hörður mun tilkynna framkomu þjálfara Stjörnunnar til HSÍ og samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Félagið mun vinna með HSÍ að meðferð málsins í heild sinni og vísar á vitni máli sínu til stuðnings. Ungir leikmenn eiga rétt á að allir fullorðnir í kringum leikinn sýni gott fordæmi. Það á við um bæði lið. Handknattleiksdeild Harðar
Hörður HSÍ Stjarnan Handbolti Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira