Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Bjarki Sigurðsson skrifar 30. september 2026 15:57 Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur er í Borgartúni. Vísir/Vilhelm Vegna tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hefur öllum 76 heilbrigðisfulltrúum landsins verið sagt upp. Þeir hafa fengið loforð um endurráðningu en ekki er búið að bjóða neinum nýtt starf hjá stofnununum sem taka við eftirlitinu.
Frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um breytingar á eftirliti með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum var samþykkt í sumar. Í því kemur fram að til að samræma heilbrigðiseftirlit verði meðal annars heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður og verkefnin færð til bæði Umhverfis- og orkustofnunar og nýrrar Stofnunar atvinnuvega. Ekki búið að ráða fólk aftur Breytingarnar taka gildi 1. janúar næstkomandi og því var öllu starfsfólki heilbrigðisnefndanna sagt upp í dag að sögn Péturs Halldórssonar heilbrigðisfulltrúa og það beðið um að vinna þriggja mánaða uppsagnarfrest sinn. Upphaflega var kynnt að áður en uppsagnarbréfið kæmi yrði búið að bjóða heilbrigðisfulltrúum nýja vinnu hjá ríkisstofnununum en Pétur segir það ekki hafa verið gert. „Það hafa orðið tafir vegna þess að Stofnun atvinnuvega fékk ekki forstjóra fyrr en í þessari viku. Umhverfisstofnun hefur því beðið með ráðningar, þótt að hún hafi verið tilbúin í að ráða. Svo er líka verið að breyta hlutverkaskiptingunni og breyta störfunum og þeim hefur ekkert verið lýst neitt sérstaklega ítarlega,“ segir Pétur í samtali við fréttastofu. Pétur Halldórsson, fráfarandi heilbrigðisfulltrúi.Aðsend Fulltrúarnir fái misvísandi upplýsingar en bæði hefur verið kynnt að öllum verði boðin endurráðning en á sama tíma sé gert ráð fyrir fækkun í eftirlitshlutverkum. Það að verið sé að skipta verkefnum milli stofnana flæki hlutina fyrir fulltrúa á landsbyggðinni. „Þar eru allt niður í eins manns starfsstöðvar, þá bara er ákveðinn ómöguleiki að skipta þessu svona upp. Reikningsdæmið gengur ekki upp ef það á að láta hálfa manneskju vinna verk,“ segir Pétur. Mikill spekileki Það sé mikill uggur innan stéttarinnar. „Það sem hefur kannski gefið fólki mesta ónotatilfinningu er hversu takmörkuð þekkingin virðist vera á viðfangsefninu hjá ríkinu. Og það er eins og það sé einhver svona þráhyggja í stjórnsýslunni að taka burtu alla faglega stjórnun. Það skiptir rosalega miklu máli og hefur alltaf verið krafa með heilbrigðiseftirlitið að hafa fagaðila í stjórnunarstöðum. En núna þegar er verið að hreinsa það allt út og markvisst verið að losna við þá sem hafa verið framkvæmdastjórar, jafnvel í áratugi, þá er þetta rosalegur spekileki sem hefur áhrif á skipulagið sem er verið að reyna núna að klóra saman fyrir áramót,“ segir Pétur. Staðið við fá loforð Honum líði eins og ráðherrarnir hafi kynnt breytinguna og svo farið í að skoða hvaða verkefnum eftirlitin sinna. „Það er mjög fátt sem hefur verið sagt í þessu breytingaferli sem hefur staðist,“ segir Pétur. Fólk leiti sér að nýrri vinnu Hann telur að fólk í stéttinni vera farið að líta í kringum sig. „Maður gerir það að sjálfsögðu þegar maður er búinn að fá uppsagnarbréf en það er ekki búið að ráða mann annars staðar. Maður er með fjölskyldu og verður að hafa einhverja möguleika í stöðunni,“ segir Pétur. „Fólk verður að hafa einhverja vinnu í janúar.“
Heilbrigðiseftirlit Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Vinnumarkaður Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira