Innlent

„Ég er bara ó­trú­lega leiður yfir þessu“

Eiður Þór Árnason skrifar
Vatnaskógur er vinsæll áfangastaður rekinn af KFUM og KFUK en þar eru bæði reknar sumar- og skólabúðir.
Vatnaskógur er vinsæll áfangastaður rekinn af KFUM og KFUK en þar eru bæði reknar sumar- og skólabúðir. Hvalfjarðarsveit

Drengur varð fyrir líkamsárás af hálfu annars barns í fermingarferð í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit um helgina. Ársæll Aðalbergsson, framkvæmdastjóri Vatnaskógar, segir atvikið afar leiðinlegt og um leið sjaldgæft.

Mbl.is greindi fyrst frá og hefur eftir Helgu Soffíu Konráðsdóttur, sóknarpresti í Háteigskirkju, að um barsmíðar hafi verið að ræða og atvikið sé „grafalvarlegt“.

„Ég er búinn að vera í þessu í nokkra áratugi og svona lagað hefur, mér vitanlega svo ég muni eftir, ekki komið upp,“ segir Ársæll í samtali við Vísi. Málið sé nú komið í ferli hjá Háteigskirkju en fermingarferðin var hluti af árlegu námskeiði sem fjölmargar kirkjur sækja.

Vonar að börnin læri að elska hvort annað

Helga sagði í samtali við Mbl.is að 52 börn hefðu tekið þar þátt á vegum Háteigskirkju. Ekki náðist í hana við vinnslu þessarar fréttar.

„Við í Vatnaskógi viljum að öllum líði vel og það er okkar markmið að allir finni sig heima í Vatnaskógi,“ segir Ársæll.

„Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu. Það eru börn sem eru þarna. Vonandi spilast bara vel úr þessu og við lærum að elska hvert annað.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×