Lífið

Risa­stór tappakollur í fal­legri í­búð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lára Long er mikil smekkkona.
Lára Long er mikil smekkkona.

Flugumferðarstjórinn Lára Long hefur komið sér einstaklega vel fyrir í fallegri hæð í Malmö. Sindri Sindrason leit við hjá henni í síðasta þætti af Heimsókn.

Sindri fór fyrst í heimsókn til hennar fyrir 12 árum eða árið 2014 en núna er hann mættur aftur og það á nýjan stað.

Þau hjónin ákváðu að minnka við sig og búa nú í einstaklega fallegri íbúð. Lára er mikil kampavínskona og fékk hún skemmtilegan koll að gjöf frá vinafólki. Um er að ræða alvöru korktappa sem er í raun kollur.

Hér að neðan má sjá tappakollinn og meira úr íbúðinni. Heimsókn er aðgengilegt inni á Sýn+.

Klippa: Risastór tappakollur í fallegri íbúð





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.