Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Andri Broddason skrifar 2. október 2026 07:02 Lewis Hamilton vill gera breytingar á Ferrari-liðinu en ekki þær sem almenningur er að biðja um. Bryn Lennon/Getty Images Lewis Hamilton segist standa með Fred Vasseur sem liðsstjóra Ferrari. Hann tekur þó fram að hann myndi gera einhverjar breytingar á stjórnendum liðsins ef hann mætti ráða.
Gengi Ferrari-liðsins hefur ekki verið gott í síðustu keppnum og velta einhverjir fyrir sér hvort að stjórn liðsins sé hæf til þess að vinna titla fyrir ítalska liðið. Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton gekk til liðs við Ferrari á síðasta ári en ljóst er að hann á ekki langt eftir af ferlinum þar sem hann er 41 árs gamall. Það er því mikil örvænting hjá honum að ná áttunda heimsmeistaratitlinum og geta þannig verið skráður í spjöld sögunnar sem sigursælasti ökumaður allra tíma í Formúlu 1. Hamilton ítrekar þó að hann beri fullt traust til Vasseur til að færa honum langþráða áttunda heimsmeistaratitilinn. Samkvæmt Sky Sports var Hamilton ánægður með umfjöllunina um Vesseur því það eina sem hún hefur gert er að ýta liðinu þéttar saman. „Við höfum nú þegar sameinast. Það eru utanaðkomandi aðilar sem reyna að draga okkur niður og fjalla neikvætt um okkur og brjóta andann í liðinu. Það er ekki að takast hjá þeim,“ sagði Hamilton þegar hann var spurður út í umfjöllun í kringum Ferrari-liðið. „Fred er leiðtoginn okkar og hann er að standa sig frábærlega. Ef þú horfir á söguna og sérð hve margir leiðtogar hafa farið eftir stuttan tíma og mér finnst liðið vera á betri stað núna heldur en áður, en í enda dags þá er þetta ekki starf eins manns.“ Hamilton er hluti af liðinu og veit hverjir veikleikarnir eru en það er flókið og kostnaðarsamt að laga þá. Hann verður því að vera alveg viss þegar hann biður um breytingar í liðinu. „Ég er hluti af liðinu svo ég veit hvað er að gerast, hvernig það er uppsett og hverjir veikleikarnir eru. Ég ætla ekki að tala um þá en ég mun reyna að vinna með fólkinu sem stjórnar til þess að gera breytingar.“
Akstursíþróttir Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Fleiri fréttir Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Heimsmeistarinn biðst afsökunar: „Tilfinningarnar báru mig ofurliði“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Vill að mótherji hans fari í bann eftir árekstur Antonelli klessti á og Russell næstum sekúndu hraðari en aðrir Stytta keppnir í Formúlu 1 Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Verstappen tók fram úr hundrað ökuþórum Antonelli stefnir hraðbyri í átt að heimsmeistaratitli Ætlar ekki að hlusta á sófasérfræðinga sem vita ekki neitt Sögulegur ráspóll heimsmeistarans Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Enn og aftur stöðvaður með skotvopn á flugvelli Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Sjá meira