Nýr kafli hafinn hjá NOMY Nomy 5. október 2026 08:30 „Við leggjum metnað í að bjóða upp á fallegar og bragðgóðar veitingar sem gleðja gesti og gera veisluna eftirminnilega.“ Eigendur NOMY kunna að töfra fram alvöru veislu. NOMY hefur á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu í íslenskri veisluþjónustu þar sem góður matur, falleg framsetning og upplifun gestanna haldast í hendur. Nú er nýr kafli hafinn hjá fyrirtækinu. Eigendahópurinn hefur breyst, nýir kraftar bæst við og ýmsar nýjungar litið dagsins ljós, en grunnurinn er sá sami.
NOMY var stofnað af meisturunum Fannari Vernharðssyni, Jóhannesi Steini Jóhannessyni og Bjarna Siguróla, sem sameinuðu reynslu sína úr veitingageiranum og áhuga á matargerð í eigin veisluþjónustu. Í febrúar 2026 varð breyting á eigendahópnum þegar einn stofnendanna seldi sinn hlut og hjónin Eyrún Erla Ólafsdóttir og Birgir Ragnar Birgisson, eigendur EB veitinga, gengu til liðs við Fannar og Jóa. Eyrún Erla Ólafsdóttir, Birgir Ragnar Birgisson, Fannar Vernharðsson og Jóhannes Steinn Jóhannesson standa á bak við NOMY. „Við sáum öll tækifæri í því að sameina kraftana. Strákarnir þrír hafa mikla reynslu úr matreiðslu og veitingarekstri og ég kem með annars konar reynslu úr rekstri, skipulagi og markaðsmálum. Við erum ólík, myndum gott teymi og það virkar mjög vel saman,“ segir Eyrún. Veislan er meira en maturinn NOMY sinnir veislum og viðburðum af öllum stærðum, allt frá einkaveislum og brúðkaupum til fyrirtækjaviðburða og árshátíða. Framboðið nær meðal annars yfir smárétti, veisluborð, hlaðborð og einkamatreiðslu. „Við leggjum metnað í veisluna sem heild. Maturinn er hjartað í því sem við gerum og með fallegri framsetningu og hlýlegri þjónustu viljum við skapa góða stemningu og eftirminnilega upplifun fyrir gesti. Við leggjum metnað í að bjóða upp á fallegar og bragðgóðar veitingar sem gleðja gesti og gera veisluna eftirminnilega. NOMY sér alfarið um veitingar í Hlöðunni á Álftanesi og vinnur jafnframt í góðu samstarfi við fjölmarga fallega veislusali, meðal annars Sykursalinn, Kjarval og Eyvindartungu. Sama NOMY með nýjum áherslum Frá því nýr eigendahópur tók við hefur verið unnið að þróun matseðla og ýmsar nýjungar bæst við framboðið. Markmiðið er þó ekki að breyta því sem NOMY stendur fyrir. „Við viljum byggja áfram á því góða sem er til staðar en leyfa okkur líka að prófa nýja hluti. Við höfum þegar kynnt ýmsar nýjungar sem hafa fengið mjög góðar viðtökur og það gefur okkur mikinn kraft til að halda áfram.“ Jólin fram undan Einn stærsti annatími ársins er nú fram undan og í ár býður NOMY upp á nokkrar ólíkar útfærslur af jólaveitingum fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Í boði eru meðal annars vegleg jólahlaðborð, jólasmáréttaseðill fyrir standandi jólaboð og fyrirtækjagleði og tilbúið jólahlaðborð fyrir þá sem vilja halda jólaboð heima eða á vinnustað en sleppa við stóran hluta undirbúningsins. Fyrir stærri hópa er jafnframt hægt að óska eftir uppsetningu og þjónustu. „Við viljum að fólk geti valið lausn eftir tilefninu. Sumir vilja halda stóra jólaveislu með öllu tilheyrandi á meðan aðrir vilja fá fallegan mat tilbúinn og geta sjálfir notið kvöldsins með gestunum sínum.“ Nánari upplýsingar um jólaframboðið má finna á hér og einnig er hægt að hafa samband við NOMY til að fá aðstoð við að finna réttu útfærsluna fyrir hverja veislu. Vinsælu gjafakörfurnar frá NOMY verða einnig í boði fyrir jólin, fullar af gómsætum kræsingum sem við útbúum sjálf. Körfurnar eru tilvalin jólagjöf fyrir starfsfólk, viðskiptavini eða einfaldlega einhvern sem á skilið eitthvað sérstaklega gott. Árshátíðir og starfsmannapartýin eru þegar hafin „Fyrirtækja skemmtanir og árshátíðirnar eru þegar komnar á fullt hjá okkur og við erum líka farin að taka við bókunum fyrir næsta tímabil. Það er mjög gaman að sjá hvað fyrirtæki eru ólík í því sem þau velja, sum vilja standandi smárétti á meðan önnur fara í veglegt hlaðborð eða aðra útfærslu. Við leggjum áherslu á að finna veitingar sem henta hverjum hópi og tilefni.“ Fólkið á bak við NOMY Þótt eigendurnir séu fjórir leggja þau áherslu á að árangur NOMY byggi fyrst og fremst á öflugri liðsheild. „Við erum ótrúlega heppin með fólkið okkar. Það stendur stór og öflugur hópur á bak við hverja veislu, það er góð stemning í hópnum og okkur finnst mikilvægt að fólki líði vel og hafi gaman af því sem það er að gera.“ „Við erum fyrst og fremst spennt fyrir því sem er fram undan. Við viljum halda áfram að þróa NOMY, gera góðan mat og skapa fallegar veitingar, án þess að missa sjónar á því sem hefur gert NOMY að því sem það er í dag.“ Sjá nánar á heimasíðunni nomy.is og á facebook og Instagram.
Matur Jólamatur Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira