Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 07:15 Haustlægðin hefur látið aðeins á sér kræla síðustu daga. Vísir/Anton Brink Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að síðdegis muni draga eitthvað úr bæði vindi og úrkomu og fer þá lægðin að fjarlægast okkur hægt og bítandi. Í kvöld er svo von á norðan 3 til 8 metrum á sekúndu með súld á norðanverðu landinu en annars þurrt að mestu. Þá kólnar smám saman í veðri, einkum fyrir norðan, og fer hitinn mest upp í átta stig syðst á landinu en verður víða við frostmark. Má gera ráð fyrir næturfrosti allvíða. Á morgun, mánudag, verður veðri svo misskipt milli landshluta og er spáð norðan 3 til átta metrum á sekúndu með bjartviðri á vestanverðu landinu en norðaustantil eru horfur á norðvestan 5 til 13 með rigningu, slyddu eða snjókomu. Rigning næst sjávarmáli en líkur á snjó aukast eftir því sem hærra er farið. Suðaustanlands er svo von á rigningu og tiltölulega litlum vindi en hiti verður áfram frá frostmarki og fer mest upp í átta stig syðst á landinu. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á mánudag: Norðan 3-8 m/s um landið vestanvert og bjartviðri. Norðvestan 5-13 norðaustantil og rigning, slydda eða snjókoma með köflum. Fremur hæg breytileg átt á Suðausturlandi og rigning um tíma. Hiti frá 1 stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Yfirleitt þurrt á landinu um kvöldið og frystir allvíða.Á þriðjudag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Hiti 2 til 7 stig yfir daginn, en víða næturfrost.Á miðvikudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað, en líkur á lítilsháttar skúrum við suðvestur- og vesturströndina. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag: Stíf suðaustanátt með rigningu, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig. Hægari vindur og skúrir vestanlands um kvöldið.Á föstudag og laugardag: Breytileg átt og líkur á vætu með köflum í flestum landshlutum. Hiti 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Sjá meira