Formúla 1

Verstappen vann skraut­lega keppni

Valur Páll Eiríksson skrifar
Verstappen fagnaði sigri í dag.
Verstappen fagnaði sigri í dag. Mark Thompson/Getty Images

Max Verstappen fagnaði sigri í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 sem fór þó fram í Malasíu í morgun. Keppnin var skrautleg og var seinkað umtalsvert vegna rigninga.

Verstappen vann sinn fyrsta kappakstur á tímabilinu en hann hafði ekki fagnað sigri í Formúlu 1 síðan í lokakeppni síðasta tímabils í Abú Dabí.

Keppni dagsins fór fram í Malasíu sökum innrása Ísraels og Bandaríkjanna í Íran og þótti ekki öruggt að keppa í Barein.

Rigning setti strik í reikninginn og keppni dagsins frestaðist umtalsvert. Það var þó fremur vegna vandamála við nýja bíla heldur en vegna rigningarinnar sjálfrar.

Miklar breytingar voru gerðar á Formúlu 1 bílum fyrir yfirstandandi tímabil þar sem rafmagnsmótor fékk aukið vægi á kostnað bensínvélar. Ekki hafði reynt á nýju bílana í rigningu þar til í dag og þegar ökuþórar hægðu á sér á upphitunarhring dagsins drap hver bíllinn á fætur öðrum á sér.

Úr varð löng pása meðan menn reyndu að leysa vélarvandræði áður keppni gat hafist. Hún gekk svo sinn vanagang eftir að hún komst af stað þar sem Verstappen, sem var á ráspól, leiddi frá upphafi til enda.

Kimi Antonelli á Mercedes varð annar og Lewis Hamilton á Ferrari þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×