Mennirnir sem létust voru feðgar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. október 2026 13:53 Frá Halden þar sem skotárásin var. vísir/ap Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Norska ríkisútvarpið (NRK) greinir frá. Maður á þrítugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um morð. Mennirnir þrír voru hluti af sama veiðihópi og voru að veiðum þegar skotárásin átti sér stað. Maðurinn sem hefur verið handtekinn tilheyrir ekki hópnum. Lögreglan á svæðinu fékk tilkynningu um skotárás rétt fyrir klukkan átt að staðartíma í bænum Halden sem er rúmlega 100 kílómetrum suðaustan við Osló. Vitni hafði yfirbugað árásarmanninn áður en lögreglu bar að garði. Verjandi árásarmannsins hefur sagt að hann muni játa sök í málinu. Gerandinn hefur ekki gefið skýrslu enn sem komið er. Fjöldi fólks varð vitni að árásinni á morgun og vinnur lögreglan nú að því að ræða við vitni og rannsaka vettvang. Fjórtán manns hafa stöðu brotaþola í málinu en þeir voru allir meðlimir í veiðihópnum. „Veiðihópurinn stillti sér upp á bæjarhlaði áður en þeir héldu út á veiðislóðir, þegar gerandi hóf að skjóta á þá,“ er haft eftir lögreglufulltrúanum Anders Svarholt í umfjöllun NRK. Enn er á huldu hvað vakti fyrir árásarmanninum og hvers vegna hann var á svæðinu. Talið er að hann tengist veiðihópnum með einum eða öðrum hætti en ekki er um fjölskyldutengsl að ræða. Maðurinn er skráður fyrir tveimur skotvopnum og er talinn hafa notað riffil við verknaðinn.
Noregur Samgönguslys Lögreglumál Múlaþing Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira