Erlent

Hyggst ná öllu land­svæðinu af Hútum

Agnar Már Másson skrifar
Rashad al-Alimi, forseti Jemen. 
Rashad al-Alimi, forseti Jemen.  Getty

Forseti Jemen segist ætla að ráðast í umfangsmiklar hernaðaraðgerðir til að ná aftur öllu því landsvæði sem uppreisnarmenn Húta hafa lagt undir sig á síðustu árum. Sádar, sem eru helstu stuðningsmenn jemensku ríkisstjórnarinnar, hafa að undanförnu staðið í undirbúningi fyrir stórsókn gegn Hútum.

Þetta gerist í framhaldi af átökum sem geisað hafa undanfarna daga á milli Húta, sem eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og alþjóðlega viðurkenndra stjórnvalda í Jemen, sem njóta stuðnings frá stjórnvöldum í Sádí-Arabíu.

Hútar stjórna í dag stórum hluta Jemen og þar á meðal höfuðborginni Sana en þeir sögðust í dag hafa gert árás á byggingar í eigu sádí-arabíska olíufélagsins Aramco. Sögðust þeir þar með hafa verið að bregðast við meintum árásum ríkisstjórnarinnar, sem hefði gert fimmtíu árásir á yfir tólf klukkustunda skeið.

Sádar hafa ekki tjáð sig um málið en þeir hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil og hófu að aðstoða ríkisstjórn Jemen árið 2015. Þá leiddu Sádar bandalag arabaríkja sem kom ríkisstjórninni til aðstoðar eftir að Hútar ráku sveitir ríkisstjórnarinnar frá Sanaa.

Gróflega það svæði sem Hútar hafa lagt undir sig í Jemen. Heimild: BBC.Datawrapper

Í síðasta mánuði tókst Hútum að leggja undir sig vestanverða strandlengju Jemen og þar á meðal ná stjórn á Bab el-Mandab-sundi sem er mikilvæg siglingarleið fyrir olíuflutninga.

„Í dag tilkynni ég að hernaðaraðgerðir hefjist til að ná aftur því landsvæði lýðveldisins og stækka við valdasvæði ríkisins og stofnana þess þvert yfir allt landsvæði þjóðarinnar,“ lýsti Rashad al-Alimi, forseti Jemen, því yfir í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar.

Hafa umkringt Taiz

Höfuðborgin Sana hefur sætt linnulausum árásum þar sem stjórnarherinn hefur reynt að draga úr hernaðarmætti uppreisnarmannanna.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir heimildum að Hútar hafi að undanförnu náð fram í Jemen.

Síðustu vikur hafa helstu bardagar átt sér stað í kringum borgina Taiz. Hún hefur verið undir stjórn ríkisstjórnarinnar en í dag tókst Hútum að skera á flutningaleið milli Tais og borgarinnar Aden, sem hefur gegnt hlutverki höfuðborgar landsins frá því að Hútar lögðu undir sig Sana.

AFP hefur eftir þremur heimildarmönnum í hernum að Hútar hafi nú stjórn á svæðinu í kringum Taiz og flutningaleiðinni til Aden. Þeir hafi þá svo gott sem umkringt Taiz.

„[Hútar] hafa náð því hernaðarmarkmiði að einangra Taiz frá Aden, þrátt fyrir að hafa ekki náð fullri stjórn á borginni,“ hefur AFP eftir Farea Al-Muslimi, sérfræðingi hjá hugveitunni Catham House.

Ólíklegt þykir að al-Alimi forseti hefði tekið svo afdráttarlaust til orða í ávarpi sínu í dag án samþykkis frá ríkisstjórn Sádi-Arabíu enda eru Sádar mikilvægustu bandamenn ríkisstjórnarinnar í Jemen.

Með sádí-arabíska olíu í sigtinu

Sádar hafa að undanförnu setið undir linnulausum árásum frá Hútum, sem hafa haft olíuiðnað Sáda í sigtinu enda er hann talinn lífæð efnahagskerfisins þar í landi.

BBC hefur eftir Yahya Saree, talsmanni Húta, að Hútar hafi skotið eldflaugum og drónum að starfstöðvum Aramco í Riyad, höfuðborg Sádí-Arabíu, og einnig að Kúraís í austurhluta landsins, þar sem mikið er um olíu.

Skæð borgarastyrjöld stóð yfir um langt skeið í Jemen en fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar og hafa átökin aukist töluvert síðan þá. Hútar hófu í sumar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu með það að markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf.

Hútar njóta stuðnings Íransstjórnar, en sádi-arabíski herinn, sem styður jemensku ríkisstjórnina, hefur staðið í átökum við uppreisnarmennina síðustu vikur.Vísir/AFP

Landvinningar Húta við Rauðahaf hafa gert þeim mun auðveldara að takmarka siglingar um svæðið, sem var orðin helsta útflutningsleið Sáda fyrir olíuafurðir vegna takmarkana á siglingum um Hormússund.

Fyrir helgi greindi Reuters frá því með vísan í heimildir að Sádar væru að undirbúa stórsókn gegn Hútum.

Verið er að skoða tvær leiðir sem Jemenum og Sádum gæti tekist að ná aftur landsvæði sínu til baka. Önnur þeirra snýst um að hefja umfangsmikla sókn gegn Hútum á breiðri víglínu í Jemen en hin um að hefja beittari sókn og takmarkaðri að munni Rauðahafs.

Hútar eru nú meðal helstu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran eftir átök Ísraela við Hezbollah í Líbanon og Hamas á Gaza en síðan þá hefur dregið verulega úr getu beggja samtaka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×