Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Agnar Már Másson skrifar 4. október 2026 23:03 Lögregla fylgir sakborningi fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur að kvöldi 22. september eftir að fjöldi manns hafði verið handtekinn um morguninn í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. Vísir/Viktor Freyr Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar. Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem fjallað hefur verið um en þar voru sautján manns í upphafi handteknir í aðgerðum lögreglu hinn 22. september, þar á meðal framkvæmdastjóri hjá BL. Öllum þeim sautján sem voru handteknir í upphafi hefur nú verið sleppt, að því er lögreglan sagði við Vísi á föstudag. Lögregla hefur ekki veitt svör vegna handtökunnar í Leifsstöð sem Rúv greinir frá en miðillinn segir manninn hafa verið handtekinn er hann kom með flugi frá Lissabon í Portúgal í kvöld. Í upphafi hafi átt að handtaka manninn hinn 22. september en þá hafi komið í ljós að hann væri í Portúgal. Vél frá Lissabon lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20.10 í kvöld, að því er fram kemur á vef Isavia. Veistu meira um málið? Sástu handtökuna? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Greint var frá því á mbl.is á fimmtudag að einn hinna grunuðu, sem væri eigandi samlokustaðar, væri staddur erlendis og að lögregla hefði hvatt hann til að koma til Íslands vegna rannsóknarinnar. Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum í tengslum við málið og segist hafa lagt hald á peninga, fíkniefni og fleiri muni. Isavia Fíkniefnabrot Efnahagsbrot Reykjavík Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira
Ríkisútvarpið greinir frá því að maðurinn sé grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem fjallað hefur verið um en þar voru sautján manns í upphafi handteknir í aðgerðum lögreglu hinn 22. september, þar á meðal framkvæmdastjóri hjá BL. Öllum þeim sautján sem voru handteknir í upphafi hefur nú verið sleppt, að því er lögreglan sagði við Vísi á föstudag. Lögregla hefur ekki veitt svör vegna handtökunnar í Leifsstöð sem Rúv greinir frá en miðillinn segir manninn hafa verið handtekinn er hann kom með flugi frá Lissabon í Portúgal í kvöld. Í upphafi hafi átt að handtaka manninn hinn 22. september en þá hafi komið í ljós að hann væri í Portúgal. Vél frá Lissabon lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20.10 í kvöld, að því er fram kemur á vef Isavia. Veistu meira um málið? Sástu handtökuna? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér. Greint var frá því á mbl.is á fimmtudag að einn hinna grunuðu, sem væri eigandi samlokustaðar, væri staddur erlendis og að lögregla hefði hvatt hann til að koma til Íslands vegna rannsóknarinnar. Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum í tengslum við málið og segist hafa lagt hald á peninga, fíkniefni og fleiri muni.
Veistu meira um málið? Sástu handtökuna? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Isavia Fíkniefnabrot Efnahagsbrot Reykjavík Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira