Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Smári Jökull Jónsson skrifar 5. október 2026 07:36 Flavio Bolsonaro ræðir við fjölmiðla þegar úrslit kosninganna voru ljós í gær. Vísir/AP Flavio Bolsonaro, frambjóðandi hægri manna í Brasilíu, hafði betur gegn Lula Da Silva, sitjandi forseta landsins, í fyrri umferð forsetakosninganna í gær. Bolsonaro náði þó ekki hreinum meirihluta og verður því kosið á milli þeirra tveggja í annarri umferð þann 25. október.
Þegar búið var að telja nær öll atkvæði hafði Bolsonaro fengið 47,03 prósent atkvæða en Lula 45,16 prósent. Lula hafði mælst með meira fylgi í aðdraganda kosninganna og niðurstaðan því nokkuð óvænt. Flavio er sonur Jairs Bolsonaro fyrrum forseta sem afplánar nú tuttugu og sjö ára fangelsisdóm fyrir að hafa skipulagt misheppnaða valdaránstilraun eftir að hafa tapað forsetakosningunum árið 2022. Var hann úrskurðaður óhæfur til endurkjörs en lýsti yfir stuðningi við son sinn. Eiginkona Jairs var kjörin á öldungadeild þingsins í gær. Bolsonaro eldri, sem nýtur meiri stuðnings í suðurhluta landsins á meðal efnameiri kjósenda og kristinna, hefur heitið því að veita föður sínum og þeim stuðningsmönnum hans sem tóku þátt í óeirðum eftir kosningarnar fyrir fjórum árum sakaruppgjöf nái hann kjöri. Talinn eiga sigurinn vísan Fréttaskýrendur segja að nú blasi við að Bolsonaro eigi sigurinn vísan í seinni umferðinni enda hafi nokkrir þeirra frambjóðenda sem féllu úr leik í fyrri umferðinni í gær verið hægrisinnaðir og líklegri til að kjósa hann í þeirri síðari. Frjálslyndi flokkurinn, flokkur Bolsonaro, fékk jafnframt kjörna flesta ríkisstjóra, öldungadeildarþingmenn og fulltrúadeildarþingmenn og verður því áhrifamestur allra flokka á þingi. Lula, sem er orðinn áttræður, sagði eftir að hafa greitt atkvæði í gær að valið stæði á milli lýðræðis og villimennsku. Hann sagði að niðurstaða kosninganna væri óvænt en að úrslitin væru ekki ráðin. „Ég viðurkenni að ég var sannfærður um að ég myndi vinna í fyrri umferðinni en leikurinn er rétt að byrja. Við erum í framlengingu og þar munum við vinna brasilísku þjóðina á okkar band.“ Bolsonaro sagðist aftur á móti vilja frelsa brasilísku þjóðina en Brasilía er stærsta ríki og með stærsta hagkerfi Suður-Ameríku. Raunverulegur möguleiki væri á því að eftir þrjár vikur myndu Brasilíumenn svara með því að kjósa nútímalega ríkisstjórn. Engar vísbendingar um afskipti stjórnar Trump Brasilíska þjóðin hefur skipst í fylkingar í kosningunum. Lula nýtur meiri vinsælda meðal tekjulágra, kaþólikka og kvenna en hann sækist nú eftir því að verða kosinn forseti í fjórða sinn. Hann vann afar nauman sigur á Bolsonaro eldri í kosningunum árið 2022 og eftir þær kosningar réðust stuðningsmenn Bolsonaro á opinberar byggingar landsins. Forseti kjörstjórnar Brasilíu sagði í gær að engar vísbendingar hefðu fundist um erlend afskipti af kosningunum. Lula sakaði á köflum Bandaríkin um að reyna að hafa áhrif á kosningarnar en því hafa bandarísk stjórnvöld neitað. Fyrr á árinu fékk Bolsonaro Bandaríkin til að skilgreina tvö stærstu glæpagengi Brasilíu sem hryðjuverkasamtök og á síðasta ári notaði Donald Trump réttarhöldin yfir Jair Bolsonaro sem réttlætingu fyrir tollum á Brasilíu og refsiaðgerðum gegn æðstu embættismönnum og dómurum landsins. Sigur Bolsonaro myndi líklega þýða að Brasilía gengi til liðs við bandalagið Shields of Americas gegn eiturlyfjasmygli og tengdist um leið Bandaríkjunum nánari böndum.
Brasilía Kosningar í Brasilíu Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira