Innlent

Af­gerandi niður­staða um að slíta kjara­samningum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Viðræðunefnd VR/LÍV fékk umboð til þess að segja upp kjarasamningum í kjölfar fundarins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fyrir miðju.
Viðræðunefnd VR/LÍV fékk umboð til þess að segja upp kjarasamningum í kjölfar fundarins. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, fyrir miðju. Vísir/Áróra

Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 

Þetta er niðurstaða stjórnarfundar VR í kjölfar fundar með trúnaðarráði félagsins. Fyrr í kvöld veitti það stjórn VR, og jafnframt samninganefnd þess, óskorað umboð til að segja upp kjarasamningum. Frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út síðdegis fimmtudaginn næstkomandi, 8. október.

„Þetta var hörkufundur. Mikil mæting, málin rædd frá ólíkum hliðum, fólk skiptist á skoðunum en það var mjög afgerandi niðurstaða. Ég er með fullt umboð úr mínu félagi,“ segir Halla Gunnarsdóttir að loknum fundi.

Hún segir að afgerandi niðurstaða hafi verið um að slíta kjarasamningum komi ekkert á móti. Allir í stjórn VR hafi greitt atkvæði með því að segja samningunum upp að öllu óbreyttu. 

Félagið sagði í yfirlýsingu fyrr í dag að Samtök atvinnulífsins hefðu ítrekað ekki sýnt viðleitni til þess að mæta stöðu launafólks vegna forsendubrests kjarasamninga.

Hún segist vona að Samtök atvinnulífsins komi til móts við VR og að þau eigi fund á morgun. Innan VR sé full samstaða til þess að „rjúfa þennan vítahring“ og áhersla sé lögð á að láta samningana halda.

„Ég held að það verði mikið óráð af Samtökum atvinnulífsins að láta þau springa í loft upp út af ekki stærra ágreiningsmáli en þessu.“

Er einhver von á að afstaða beggja aðila breytist á fundinum á morgun?

„Já, ég bara vona það. Það sem auðvitað reynir á í svona sameiningarviðræðum er að leyfa sér að hugsa í lausnum og að opna á lausnir sem eru kannski ekki beint fyrir framan nefið á þér akkúrat þegar þú byrjar. Við erum tilbúin til að gera það.“

Nú eru þrír sólarhringar til stefnu þangað til frestur til að segja upp samningum rennur út. Halla segist sannfærð um að lausnin sé til en hins vegar sé alveg skýrt að ef það eigi að „þvinga okkur áfram inn í launalækkanir“ sjái félagið sér ekki fært annað en að segja samningunum upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×