Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Íþróttadeild Sýnar skrifar 6. október 2026 20:34 Strákarnir gerðu jafntefli við Eistland, aftur. Getty Margur hefur spilað betur í íslenska karlalandsliðinu en þeir gerðu í Tallinn í Eistlandi í kvöld. Leik liðanna lauk með markalausu jafntefli í tíðindalitlum leik.
Fjölmargir hafa átt betri dag en í Tallinn þetta þriðjudagskvöldið og steindauður leikur sem var í járnum lengst af lauk með markalausu jafntefli. Annan leikinn við Eista í röð var Hákon Rafn, markvörður Íslands, besti maður vallarins. Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [7] - Maður leiksins Bestur í íslenska liðinu í dag. Bjargaði oftar en einu sinni og ávallt á tánum þegar vörnin klikkaði fyrir framan hann. Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður [5] Vann þónokkra skallabolta og var kröftugur. Kom ekki mikið út úr honum sóknarlega og átti ásamt restinni af varnarlínunni í vandræðum með snarpar sóknir Eista. Stefán Teitur Þórðarson, miðvörður [5] Var öflugri í nýrri stöðu í miðverðinum gegn Eistum á Laugardalsvelli fyrr í glugganum. Hann og Hörður Björgvin sofnuðu oftar en einu sinni á verðinum þegar Eistar sóttu hratt. Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður [5] Sama og að ofan. Hákon Rafn vel á tánum og greip inn í oftar en einu sinni þegar vörnin klikkaði. Var skipt af velli fyrir Loga Tómasson um miðjan síðari hálfleik. Daníel Leó Grétarsson, vinstri bakvörður [4] Var bersýnilega að spila út úr stöðu og hefur átt betri landsleiki en í vinstri bakverðinum í dag. Færðist í miðvörðinn þegar Hörður Björgvin fór af velli. Hákon Arnar Haraldsson, hægri vængmaður [6] Sjaldnast hægt að setja mikið út á hlaupagetu Hákons en það kom minna út úr honum fram á við í þessum leik en öðrum hingað til. Kannski hefur það eitthvað að segja að Skagamaðurinn er búinn að hlaupa um það bil 60 kílómetra í fjórum leikjum á ellefu dögum. Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður [6] Hluti af miðju sem skapaði fátt fram á við gegn þéttum Eistum. Reyndi að brjóta línur með sendingum en þær skiluðu fáu stærstan part. Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður [5] Skapaði hvað hættulegustu færi Íslands með hornspyrnum sínum en sást ekki mikið í spilinu úti á velli. Mikael Neville Anderson, vinstri vængmaður [5] Eftir frábæran leik á hægri kanti og í hægri bakverði á laugardaginn var er hann færður yfir á vinstri kantinn og var ef til vill enginn greiði gerður með því. Hefði verið gaman að sjá hann aftur hægra megin og hvort hann hefði getað fylgt eftir góðum laugardegi. Er vorkunn að hafa haft miðvörð í bakverði á bakvið sig og hjálpin fram á við lítil. Andri Lucas Guðjohnsen, framherji [5] Kom boltanum yfirleitt vel frá sér í þau fáu skipti sem menn fundu hann í fætur. Sást ekki mikið til hans. Orri Steinn Óskarsson, framherji [4] Skapaði hættu í byrjun leiks en var eftir það enn ósýnilegri en Andri Lucas. Varamenn Brynjólfur Willumsson [5] kom inn á fyrir Gylfa Þór Sigurðsson á 67. mínútu. Komst í eitt færi í blálokin þegar hann gerði vel á teignum en kom boltanum ekki í markið. Logi Tómasson [5] kom inn á fyrir Hörður Björgvin Magnússon á 67. mínútu. Skilaði litlu eftir að hafa komið inn af bekknum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira