Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Agnar Már Másson skrifar 6. október 2026 22:00 Margrét Friðriksdóttir var sakfelld fyrir meiðyrði. Vísir/Lýður Valberg Margrét McArthur Friðriksdóttir segist undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu eftir að Landsréttur synjaði áfrýjunarbeiðni hennar í meiðyrðamáli.
Margrét var sakfelld fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Landsréttur synjaði henni um leyfi til að áfrýja dóminum 2. október 2026, að því er fram kemur í tilkynningu þar sem Margrét boðar sömuleiðis mál fyrir Evrópudómstólnum. Málið hófst eftir að Barbara sakfelldi Margréti árið 2023 fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdaroglu baráttukonu. Í kjölfarið birti Margrét færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún kallaði Barböru „lausláta mellu“ og hélt því fram að vitnisburðir í máli hennar hefðu verið falsaðir. Um hefði verið að ræða „plott“ til að fá hana sakfellda. Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi síðar Margréti fyrir ærumeiðingar í garð Barböru. Í byrjun júní var Margrét dæmd til að greiða tvö hundruð þúsund króna sekt eða sitja í fangelsi í fjórtán daga. Í tilkynningu frá Margréti segir að kæran til Mannréttindadómstólsins muni einkum byggja á 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð og 10. gr. um tjáningarfrelsi. Meðal álitaefna sé að Margrét hafi óskað eftir að leiða vitni sem hún taldi geta stutt þann staðreyndagrundvöll sem hún byggði ummæli sín á, en leiðslu nokkurra þeirra var synjað. „Við sakfellingu var síðan meðal annars talið að alvarlegar staðhæfingar hennar væru ekki studdar nægilegum sönnunargögnum,“ segir í tilkynningunni. Margrét vildi leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralangt einelti af hálfu Sigríðar. „Margrét mun ekki fara fram á að Mannréttindadómstóllinn taki afstöðu til persónulegra ásakana um einstaka dómara, heldur hvort íslenska ríkið hafi tryggt henni réttláta málsmeðferð og hvort refsiverð skerðing á tjáningarfrelsi hennar hafi verið nauðsynleg og meðalhófskennd samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu,“ segir í tilkynningunni þar sem tekið er fram að kæran sé nú í undirbúningi og verði send Mannréttindadómstól Evrópu í Strasbourg.
Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Dómstólar Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira