Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Úrval Útsýn 8. október 2026 08:44 Sérferðir Úrvals Útsýnar hafa sjaldan verið fjölbreyttara. Í vetur geta ferðalangar valið um fjölbreyttar ævintýraferðir þar sem fólk getur notið þess að ferðast án þess að þurfa sjálft að hafa áhyggjur af öllum smáatriðunum. Þegar haustið færist yfir og dagarnir styttast fara margir að huga að ferðalögum vetrarins og vorsins. Úrval sérferða Úrval Útsýnar hefur sjaldan verið fjölbreyttara og í vetur geta ferðalangar meðal annars valið um ævintýraferðir til Filippseyja, Suður-Afríku og Kákasus, siglingar um Miðjarðarhafið og Dóná og notalega aðventusiglingu um Rín og Main. „
Við leggjum mikla áherslu á að bjóða fjölbreyttar sérferðir þannig að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Í þessum ferðum skiptir miklu máli að fólk geti notið þess að ferðast án þess að þurfa sjálft að hafa áhyggjur af öllum smáatriðunum,“ segir Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir, forstöðumaður hjá Úrval Útsýn. Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir er forstöðumaður hjá Úrval Útsýn. Brynjólfur Löve. Hún segir áherslu lagða á vandaða gistingu, góðan aðbúnað, þægilegar dagleiðir, hæfilega stóra hópa og reynslumikla fararstjóra. „Markmiðið er að fólk fái sem mest út úr ferðinni, kynnist nýjum stöðum og menningu og komi heim með fullt af góðum minningum.“ Við skulum líta nánar á nokkrar af þeim spennandi sérferðum sem eru fram undan. Jólamarkaðurinn á Römerberg í Frankfurt, einum af viðkomustöðum aðventusiglingarinnar um Rín og Main. Aðventusiglingar um Rín og Main Aðventusigling um Rín og Main er sex daga ferð sem sameinar það besta við evrópska aðventu: glæsilega jólamarkaði í fjórum sögufrægum borgum og afslappandi siglingu um árnar Main og Rín. Ferðin stendur yfir dagana 27. nóvember-2. desember og er siglt með skipinu MS Tiara þar sem allt fæði og allir drykkir eru innifaldir í verðinu. „Við ætlum að heimsækja borgirnar Frankfurt, Speyer, Strasbourg og Mainz en hver viðkomustaður býður upp á sína einstöku jólatöfra og sögu,“ segir Ingibjörg. Fararstjóri er Ingibjörg Lárusdóttir. Hún hefur starfað í ferðaþjónustu í fjölda ára, samhliða störfum sínum sem lögfræðingur. Ingibjörg hefur verið fararstjóri fyrir Úrval Útsýn í ferðum m.a. Taílands, Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og Grikklands, auk þess að hafa stýrt siglingum víða um heim. Sól, sjór og bátalíf við strendur Ilhabela í Brasilíu. Draumasigling um nokkrar perlur Suður-Ameríku Í þessari spennandi ferð er boðið upp á siglingu með Costa Serena með viðkomu í Úrúgvæ og á nokkrum af fegurstu stöðum Brasilíu. Ferðin hefst í hinni litríku og heillandi höfuðborg Argentínu, Buenos Aires, þar sem hópurinn fær tíma til að kynnast borginni áður en haldið er um borð í Costa Serena. „Fyrst er siglt til Montevideo sem er höfuðborg Úrúgvæ. Borgin stendur við Río de la Plata og sameinar fallega gamla borgarhluta, torg, markaði og afslappað suður-amerískt borgarlíf,“ segir Ingibjörg. „Næst er siglt meðfram stórbrotinni strandlengju Brasilíu þar sem ferðalangar fá að kynnast brasilískri strandmenningu, grænum eyjum og tærbláum sjó, fallegu eyjunni Ilhabela og hinni stórbrotnu Rio de Janeiro. Íslensk fararstjórn er í höndum Ingibjargar Lárusdóttur sem hefur einstaka nærveru og leysir úr öllum málum eins og hendi sé veifað.“ Stórbrotið lón á Coron-svæðinu á Palawan á Filippseyjum. Ógleymanleg ævintýraferð til Filippseyja Dagana 6.–21. mars 2027 býður Úrval Útsýn upp á ævintýraferð til Filippseyja þar sem ferðalangar kynnast nokkrum af fegurstu stöðum þessa einstaka eyjaklasa. Fararstjóri er Kristján Steinsson, einn reyndasti fararstjóri Úrval Útsýnar, en hann hefur starfað í ferðabransanum í yfir 30 ár og er menntaður leiðsögumaður og ferðamálafræðingur. „Ferðin hefst í Manila þar sem meðal annars verður farið um sögufræga borgarhlutann Intramuros. Þaðan liggur leiðin til Boracay, sem er þekkt fyrir silkimjúkar, hvítar strendur og tærbláan sjó, og áfram til Bohol þar sem hin frægu Chocolate Hills eru meðal viðkomustaða.“ Einnig verður dvalið í El Nido og Coron á Palawan þar sem stórbrotnir kalksteinaklettar, falin lón og paradísarstrendur setja svip sinn á landslagið. „Þar verður meðal annars siglt milli eyja, farið á kajak, snorklað við litrík kóralrif og synt í tærum lónum.“ Marseille, elsta borg Frakklands, er einn af viðkomustöðum í páskasiglingunni um Miðjarðarhafið. Páskasigling um Miðjarðarhafið Glæsileg páskaferð um Miðjarðarhafið er meðal þess sem Úrval Útsýn býður upp á vorið 2027. Ferðin verður farin 18.–28. mars og siglt verður um Miðjarðarhafið með hinu glæsilega skemmtiferðaskipi Costa Toscana. Ferðin hefst og lýkur í Róm og þar verður gist bæði fyrir og eftir siglinguna. Fararstjóri er Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra sem meðal annars hefur gegnt sendiherrastöðum í Helsinki, Vín og Peking. „Frá Róm er haldið um borð í Costa Toscana og siglt til Savona á ítölsku rívíerunni. Þaðan liggur leiðin til Marseille, elstu borgar Frakklands, og síðan til Barcelona þar sem meðal annars má njóta stórbrotinnar byggingarlistar Gaudís og iðandi borgarlífs,“ segir Ingibjörg. „Næsti áfangastaður er Palma á Mallorca með sínum fallega gamla bæ og glæsilegu La Seu-dómkirkju. Eftir dag á siglingu er komið til Palermo á Sikiley áður en haldið er aftur til Rómar þar sem ferðalangar fá tíma til að njóta borgarinnar.“ Gergeti-hofið í Kazbegi er einn af hápunktum ferðarinnar um Georgíu og Armeníu, umlukið stórbrotnu landslagi Kákasusfjallanna. Kákasusævintýri í Georgíu og Armeníu Saga, menning og stórbrotin náttúra Kákasusfjallanna leika lykilhlutverk í ævintýraferð Úrval Útsýnar um Georgíu og Armeníu, sem farin verður 15.–25. apríl 2027. Fararstjórn er í höndum hins reynslumikla Kristjáns Steinssonar. „Ferðin hefst í Armeníu þar sem höfuðborgin Yerevan, hið forna Khor Virap-klaustur og Ararat-fjall eru meðal hápunkta. Þaðan liggur leiðin meðal annars um Dilijan og áfram til Georgíu. Þar verður komið við í Kákasusfjöllunum og hinu þekkta Gergeti-hofi í Kazbegi áður en haldið er til höfuðborgarinnar Tbilisi,“ segir Ingibjörg. „Ferðalangar kynnast jafnframt hinu rómaða vínræktarhéraði Kakheti og fá að njóta fjölbreyttrar matarmenningar svæðisins, auk þess að upplifa fornan menningararf og tilkomumikið fjallalandslag þessara tveggja sögufrægu landa.“ Pantheon í Róm er ein best varðveitta bygging Forn-Rómar og var upphaflega hof helgað öllum guðum Rómverja. Töfrar Rómar á einni viku Saga Rómar lifnar við í þessari vikuferð Úrval Útsýnar 23.–30. apríl 2027 þar sem farið verður um slóðir keisara og páfa, auk þess sem ítölsk vínmenning fær sinn sess. Fararstjóri er Benedikt Sigurðsson, prestur í Garðaprestakalli, mikill útivistarmaður sem hefur ferðast víða um Ísland með hópa. „Meðal þekktustu kennileita á leiðinni eru Spænsku tröppurnar, Trevi-brunnurinn, Pantheon og Piazza Navona. Einnig verður horfið aftur til tíma Rómaveldis við Colosseum, Forum Romanum og Palatínhæð.“ Vatíkanið verður sömuleiðis heimsótt þar sem Vatíkansöfnin, Sixtínska kapellan og Péturskirkjan eru meðal hápunkta. „Að lokum verður stórborgin skilin eftir um stund og haldið í Albano-hæðirnar. Þar verður fjölskyldurekinn vínbóndabær heimsóttur og Frascati-vín smakkað í ítalskri sveitasælu.“ Borðfjallið gnæfir yfir Höfðaborg í Suður-Afríku, sveipað sínu einkennandi skýjateppi. Til hægri sést Camps Bay og fjallgarðurinn Tólfpostularnir. Ævintýraferð til Suður-Afríku Stórbrotin náttúra, fjölbreytt dýralíf og vínrækt eru meðal þess sem bíður ferðalanga í 15 daga ævintýraferð Úrval Útsýnar til Suður-Afríku. Fararstjóri er Tómas Bolli Hafþórsson sem þekkir landið afar vel og hefur ferðast þangað reglulega síðustu 16 ár. „Ferðin hefst í Höfðaborg þar sem meðal annars verður farið upp á hið tignarlega Table Mountain og komið við á V&A Waterfront. Einnig verður ekið um Kápuskagann eftir hinni stórbrotnu Chapman's Peak Drive, með viðkomu við Góðrarvonarhöfða og Cape Point.“ Í vínhéraðinu við Franschhoek verður ferðast milli sögufrægra vínbúgarða áður en haldið er inn í Karoo-hálfeyðimörkina. „Þar verður gist á Inverdoorn-safarísvæðinu og farið í safarí í leit að fjölbreyttu dýralífi. Strandbærinn Hermanus, sem er þekktur fyrir hvalaskoðun, er síðan meðal síðustu viðkomustaða áður en haldið er aftur til Höfðaborgar.“ Þinghúsið í Búdapest við bakka Dónár í morgunbirtunni. Byggingin er eitt þekktasta kennileiti höfuðborgar Ungverjalands. Stórkostleg sigling um Dóná til Svartahafs Á þessari ævintýralegu siglingu með VIVA Cruises er ferðast um hjarta Evrópu eftir Dóná, allt frá Passau í Þýskalandi til Svartahafs og aftur til baka. Á leiðinni er siglt um átta lönd og komið við í fjölmörgum sögufrægum borgum og bæjum. „Meðal helstu áfangastaða eru Vín í Austurríki og Búdapest í Ungverjalandi áður en haldið er áfram til Novi Sad og Belgrad í Serbíu. Þaðan liggur leiðin meðal annars til Ruse og Vidin í Búlgaríu og áfram til Rúmeníu,“ segir Ingibjörg. „Einn af hápunktum ferðarinnar er siglingin um Járnhliðin, stórbrotið gljúfrasvæði á landamærum Serbíu og Rúmeníu þar sem Dóná liðast milli háreistra kletta. Um borð er allt fæði innifalið ásamt áfengum og óáfengum drykkjum og hægt er að njóta heita pottsins, sólardekksins og spa-aðstöðu skipsins á milli áfangastaða.“ Kynntur þér þessar spennandi sérferðir og fleiri til á vef Úrvals Útsýnar.
Ferðalög Ferðaþjónusta Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Fleiri fréttir Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Sjá meira