Innlent

Borgin aftur­kallar lóðir trúfélaganna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs.
Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs. Vísir/Vilhelm

Lóðir sem voru úthlutaðar til annars vegar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi verða afturkallaðar. Málinu var fyrst um sinn frestað eftir að félögin komu af fjöllum.

Til stóð að afturkalla lóðirnar á fundi borgarráðs í september. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagðist hafa sent bréf í sumar til beggja trúfélaganna þar sem þau fengu tækifæri til að mótmæla afturkölluninni en engin bárust andmæli.

Þegar fjallað var um málið í fjölmiðlum stigu talsmenn Félags múslima á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar fram og sögðust koma af fjöllum. Hið fyrrnefnda fékk úthlutaða lóð árið 2013 og hið síðarnefnda árið 2009. Engar framkvæmdir eru farnar af stað en samkvæmt reglum borgarinnar eiga framkvæmdaaðilar almennt að hefja framkvæmdir innan þriggja ára og ekki standa lengur en í þrjú ár.

Málinu var frestað til að gefa trúfélögunum tækifæri á að skila inn andmælum og var málið aftur tekið upp á fundi borgarráðs í gær.

Fresturinn löngu runninn út

Í andmælum rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar segir að til stóð að hefja framkvæmdir í haust. Þau hafi aldrei fengið bréf frá Reykjavíkurborg um að til stæði að afturkalla lóðina en hafi nýlega klárað allar teikningar. Nú væru þau að bíða eftir leyfi frá borginni sjálfri til að hefja byggingu kirkjunnar. Yfir átta hundruð manns eru meðlimir í kirkjunni og sé núverandi húsnæði þeirra við Öldugötu of lítið.

Fulltrúi Félags múslima segir einnig að meðlimir félagsins kannist ekki við að hafa fengið bréf um afturköllun lóðarinnar. Óskað er eftir fresti til andmæla og fundi með fulltrúum borgarráðs vegna málsins. 

Þrátt fyrir andmælin var lagt til á fundi borgarráðsins að samþykkja drög að svarbréfi Reykjavíkurborgar þar sem lóðirnar eru báðar afturkallaðar. Síðasti frestur sem trúfélögin hafi fengið rann út 1. júlí 2025 fyrir Félag múslima og 4. mars 2022 fyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjuna.

„Umtalsverður tími er liðinn frá úthlutun lóðanna og undirritun samninga og hafa framkvæmdafrestir því allir runnið sitt skeið,“ segir í bréfi borgarinnar.

Umræddar lóðir eru annars vegar við Suðurlandsbraut 76 og hins vegar við Mýrargötu 21-23.


Tengdar fréttir

Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu

Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×