Innlent

Opið hús í Höfða í dag

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Opið hús er í Höfða í dag.
Opið hús er í Höfða í dag. vísir/vilhelm

Landsmönnum gefst kostur á að skoða hið sögumerka hús Höfða í Reykjavík í dag en þar er búið að koma fyrir söguhorni. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar.

Opna húsið í Höfða stendur til klukkan fjögur í dag og er hluti af friðarviku á vegum Reykjavíkurborgar. Fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og af því tilefni verður dagskrá þar í dag.

Guðbrandur Benediktsson er safnstjóri Borgarsögusafns.

„Við erum að opna sýningu eða söguhorn inni í Höfða sem var vettvangur mikilla viðburða hér fyrir 40 árum þegar að Ronald Reagan og Gorbatsjov hittust til að ræða afvopnun, fundur sem hafði mikil áhrif á íslenskt samfélag, öll fjölmiðlaumfjöllunin og það. Og auðvitað líka svona fyrsta skrefið í þíðu á milli stórveldanna getum við sagt. Og það leiddi síðan af sér áframhaldandi samræður. En þetta var kannski, ísinn var kannski brotinn hérna á Íslandi.“

Leiðtogafundurinn er í forgrunni á sýningunni en einnig er leitað leiða til að varpa ljósi á tíðarandann á þessum tíma.

„Það var náttúrulega mikið sem gerðist árið '86. Reykjavík varð 200 ára og eignaðist Viðey. Síðan var lottó og Eurovision þannig að Íslendingar fundu svolítið til sín af allri þessari athygli sem þeir fengu samhliða fundinum því að hér var náttúrulega bara heimspressan mætt á staðinn með augun og eyrun opin.“

Tendrun friðarsúlu Yoko Ono fór fram í Viðey í gær.

„Yoko hefur nú gjarnan komið en hún er nú ekki á landinu núna, orðin nokkuð gömul, en friðarsúlan er auðvitað orðin svona ákveðið tákn í Reykjavík og minnir okkur líka bara á þá ósk að um frið, um heim allan.“

Guðbrandur hvetur fólk til að kíkja í Höfða í dag.

„Ég hvet fólk til að kynna sér þá dagskrá sem er í boði í friðarvikunni og taka þátt í henni. Þetta er náttúrulega mikilvægur boðskapur og vert að hafa hann í huga, sérstaklega á tímamótum sem þessum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×