Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Atli Ísleifsson skrifar 12. október 2026 13:52 Spáð er stormi og stórhríð á miðvikudaginn. Veðurstofan Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi.
Á vef Veðurstofunnar má sjá að gular viðvaranir taka gildi á suðurhluta landsins á miðvikudagsmorgun og taka þær gildi á vestur- og norðvesturhluta landsins um hádegisbil. Spáð er austan- og norðaustan stormi þar sem má reikna með snörpum vindhviðum víða um land og verður ýmist varasamt eða ekkert ferðaveður. Appelsínugul viðvörun tekur svo gildi á Vestfjörðum klukkan 17 á miðvikudag og á Ströndum og Norðurlandi vestra þremur tímum síðar. Síðustu viðvaranirnar gilda til sex á fimmtudagsmorgun. Á vef Veðurstofunnar má sjá að eins og staðan er nú verða engar viðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu. Að neðan má sjá upplýsingar um þær viðvaranir sem hafa verið gefnar út: Suðurland Austan og norðaustan stormur (Gult ástand) 14 okt. kl. 06:00 – 12:00 Austan og norðaustan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast syðst. Talsverð rigning á láglendi. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Faxaflói Norðaustan og norðan stormur (Gult ástand) 14 okt. kl. 10:00 – 23:00 Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast norðantil. Talsverð rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla, einkum norðantil. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Breiðafjörður Norðaustan og norðan stormur (Gult ástand) 14 okt. kl. 10:00 – 20:00 Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast norðantil. Talsverð rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Norðan hríð (Gult ástand) 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 01:00 Norðan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma. Takmarkað skyggni og snjóþekja á vegum. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Vestfirðir Norðaustan hríð (Gult ástand) 14 okt. kl. 11:00 – 17:00 Norðaustan og síðar norðan 15-25 m/s og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil rigning, slydda eða snjókoma, snjólínan færist neðar eftir því sem á líður. Slæmt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Norðan stórhríð (Appelsínugult ástand) 14 okt. kl. 17:00 – 15 okt. kl. 02:00 Norðan 18-25 m/s. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið. Strandir og Norðurland vestra Norðaustan stormur (Gult ástand) 14 okt. kl. 10:00 – 20:00 Norðaustan 15-25 m/s, hvassast í vindstrengjum við fjöll og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil rigning á láglendi, en slydda eða snjókoma til fjalla. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Norðan stórhríð (Appelsínugult ástand) 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 05:00 Norðan 18-25 m/s, hvassast norðantil. Talsverð eða mikil snjókoma eða slydda með lélegu skyggni og snjó á vegum. Ekkert ferðaveður. Snarpar vindhviður og lausamunir geta fokið. Suðausturland Austan og norðaustan stormur (Gult ástand) 14 okt. kl. 06:00 – 12:00 Austan og norðaustan 15-25 m/s og snarpar vindhviður, hvassast undir Öræfajökli. Talsverð eða mikil rigning á láglendi. Varasamt ferðaveður. Lausamunir geta fokið. Miðhálendið Austan og norðaustan stormur með hríð (Gult ástand) 14 okt. kl. 07:00 – 14:00 Austan og norðaustan 18-25 m/s og snarpar vindhviður. Talsverð eða mikil snjókoma, slydda eða rigning. Ekkert ferðaveður. Norðvestan hríð (Gult ástand) 14 okt. kl. 20:00 – 15 okt. kl. 06:00 Norðvestan 15-25 m/s og snjókoma. Ekkert ferðaveður.
Veður Tengdar fréttir Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43 Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43 Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Lægð sem þokast frá Bandaríkjunum í átt að Íslandi gæti dýpkað meira en áður var gert ráð fyrir. Gangi nýjustu spár eftir gæti lægðin orðið sú krappasta sem gengur yfir landið í októbermánuði í rúm sextíu ár. 12. október 2026 09:38 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Sjá meira
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43
Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. 12. október 2026 11:43
Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Lægð sem þokast frá Bandaríkjunum í átt að Íslandi gæti dýpkað meira en áður var gert ráð fyrir. Gangi nýjustu spár eftir gæti lægðin orðið sú krappasta sem gengur yfir landið í októbermánuði í rúm sextíu ár. 12. október 2026 09:38