Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar 16. október 2026 09:02 Sumt er nú þannig að manni verður fyrirmunað að skilja. Við tölum um að það vanti raforku, flutningskerfið hamli atvinnuuppbyggingu og hraða þurfi orkuskiptum. Á sama tíma berast fréttir af samdrætti í byggingariðnaði og auknu atvinnuleysi. Verkefnin vantar ekki. Þörfin er fyrir hendi. Hvernig væri að tengja þetta saman? Við þurfum að horfa lengra en til næstu hagtalna. Þegar dregur úr verkefnum hjá verktökum er ástæða til að skoða hvernig nýta megi þekkingu, tæki og mannafla til þeirra framkvæmda sem samfélagið þarf hvort sem er að ráðast í. Það er lítil skynsemi í að láta reynslu og getu glatast á meðan nauðsynleg innviðauppbygging bíður. Hér í Húnabyggð höfum við bent á mjög áþreifanleg verkefni. Fyrsta áfanga Holtavörðuheiðarlínu 3, frá Blönduvirkjun að Laxárvatni við Blönduós, og virkjunarkosti á veituleið Blönduvirkjunar. Þessi verkefni þarf að undirbúa og framkvæma í samhengi, þannig að aukin orkuvinnsla og geta til að afhenda orkuna fylgist að. Komum orkunni í vinnu Landsnet hefur ákveðið að fara byggðaleiðina með Holtavörðuheiðarlínu 3 og hefja uppbygginguna á tengingu Blöndustöðvar við Laxárvatn. Það er mikilvæg niðurstaða og í samræmi við þær áherslur sem við höfum lagt fram. En ákvörðun á blaði flytur ekkert rafmagn. Nú þarf að fylgja henni eftir með skýrri framkvæmdaáætlun, fjármögnun og tímasetningum. Fyrsti áfanginn getur aukið afhendingargetu á Norðurlandi vestra áður en öll línan er tilbúin. Fullur ávinningur næst þó ekki fyrr en síðari áfanginn er einnig kominn í rekstur. Það er því ástæða til að flýta þeim fyrri og halda jafnframt áfram undirbúningi þess síðari. Við höfum lengi bent á að flutningstakmarkanir standi í vegi fyrir því að nýta möguleikana við Blöndu til fulls. Hversu lengi eigum við að ræða um aukna verðmætasköpun án þess að tryggja þær tengingar sem hún byggir á? Á veituleið Blönduvirkjunar eru fyrirhugaðar Kolkuvirkjun, Friðmundarvirkjun og Þramarvirkjun. Þar er horft til þess að nýta fall á núverandi veituleið milli Blöndulóns og Gilsárlóns. Það er ástæða til að koma þeim kostum áfram með vönduðum undirbúningi, mati á umhverfisáhrifum og nauðsynlegum leyfum. Að nýta betur kerfi sem þegar hefur verið byggt upp á að vera raunverulegt viðfangsefni, ekki eilíft umræðuefni. Byggðalína þarf að þjóna byggðinni Ég hef áður spurt hvort við séum að byggja byggðalínu eða borgarlínu. Sú spurning snýst um það hver fær tækifæri til að nýta orkuna. Það nægir okkur ekki að geta horft á rafmagnslínur liggja um sveitarfélagið. Fyrirtæki í Húnabyggð þurfa að geta fengið raforku til starfsemi og uppbyggingar. Það sama á við um nágranna okkar á Norðurlandi vestra. Afhendingargeta þarf að vera til staðar þegar tækifærin koma, því fjárfestar bíða ekki endalaust á meðan við bíðum eftir innviðum. Það er líka annað sem fær of litla athygli í þessari umræðu: hluti raforkunnar tapast á leiðinni til notenda. Það er orka sem hefur verið unnin en skilar sér ekki til heimila eða fyrirtækja. Með því að nýta orkuna nær virkjuninni má draga úr þörf fyrir langa flutninga og þeim töpum sem þeim fylgja. Atvinnuuppbygging nærri virkjunum getur því bæði styrkt byggðina og bætt nýtingu orkunnar. Þann ávinning þarf líka að reikna. Orkuöryggið þarf líka að vera raunverulegt. Við höfum lagt áherslu á fulla tvítengingu Hnjúka og Laxárvatns og að kerfið geti staðist bilun í einum meginþætti án þess að afhending til notenda falli niður. Slíkt þarf að útfæra og tryggja, ekki láta nægja almenn fyrirheit um að staðan verði betri einhvern tímann. Þjóðhagslegur ávinningur verður líka að sjást í þeim byggðum sem leggja til landið og auðlindirnar. Hvað með verðbólguna? Vissulega kosta framkvæmdir fjármuni og geta aukið þenslu. Það væri óábyrgt að halda öðru fram. En tímasetningin skiptir máli. Þegar verkefnum fækkar og tæki og mannafli losna getur skapast svigrúm til að ráðast í nauðsynlega uppbyggingu með minni þrýstingi á verðlag og laun en þegar allt er á fullri ferð. Það þýðir ekki að allir sem missa vinnu við húsbyggingar geti daginn eftir hafið störf við háspennulínur. Verkefnin kalla á ólíka sérhæfingu og undirbúning. Einmitt þess vegna þarf að skipuleggja þetta af alvöru og með fyrirvara. Til lengri tíma felst ávinningurinn í því að geta framleitt meira, nýtt orkuna betur og dregið úr notkun innflutts eldsneytis þar sem raforka getur komið í staðinn. Öruggari afhending getur jafnframt dregið úr rekstrartruflunum og skapað fyrirtækjum svigrúm til vaxtar. Það er ekki ávísun á sjálfvirka lækkun raforkuverðs eða lausn á öllum efnahagsvanda. En það er uppbygging sem getur aukið verðmætasköpun og styrkt undirstöður hagkerfisins. Kostnaðinn við að bíða þarf líka að reikna: töpuð atvinnutækifæri, vannýtta orku og framkvæmdir sem verða aldrei að veruleika vegna þess að rafmagnið fæst ekki afhent. Sanngirnin verður að fylgja með Við í Húnabyggð höfum lagt okkar af mörkum til raforkuvinnslu landsins og viljum taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu. En þá verður líka að tryggja að nærsamfélagið njóti ávinningsins. Afstaða mín er skýr. Leiðrétta þarf tekjustofna orkusveitarfélaga með afnámi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Tryggja þarf sanngjörn kjör gagnvart landeigendum og byggja upp þá vegi og aðra innviði sem framkvæmdirnar reyna á. Og orkan þarf að geta skapað störf þar sem hún verður til. Það gengur ekki að tala um þjóðhagslega nauðsyn þegar óskað er eftir landi undir mannvirki, en líta svo á þarfir nærsamfélagsins sem aukaatriði. Stjórnvöld, Landsnet og Landsvirkjun þurfa nú að samræma sín áform og setja fram tímasetta áætlun um uppbygginguna við Blöndu og fyrsta áfanga Holtavörðuheiðarlínu 3. Þar þurfa að liggja fyrir skýr svör um framkvæmdahraða, afhendingargetu og hvernig fullu afhendingaröryggi verður náð. Við þurfum ekki fleiri almennar yfirlýsingar um mikilvægi orkuöryggis. Við þurfum framkvæmdir sem skila því. Komum orkunni í vinnu og tryggjum að ávinningurinn verði líka eftir þar sem hún verður til. Höfundur er forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húnabyggð Orkuskipti Orkumál Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun