Sport

Fót­bolti í fár­viðri og lausir miðar á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi sínu bestu hesta í landsliðið í dag.
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari valdi sínu bestu hesta í landsliðið í dag. vísir/vilhelm

Margir halda að það séu ekki til neinir miðar á leiki Íslands á HM en í dag kom í ljós að það er enn hægt að kaupa miða. Óvænt tíðindi fyrir marga.

Þetta kom fram á blaðamannafundi HSÍ í dag er Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari tilkynnti leikmannahóp sinn fyrir komandi verkefni í undankeppni HM.

Hægt er að kaupa miða á heimasíðu HSÍ eða einfaldlega með því að smella hér. Það voru fáir miðar í boði er þessi frétt var skrifuð.

Rokið mun ráða ríkjum á suðvesturhorninu um helgina og fótboltaleikirnir í Bestu deildunum gætu því orðið skrautlegir. Allt í beinni á Vísi og sportrásum Sýnar. Um að gera að hafa það huggulegt undir teppi og horfa á boltann eða Bakgarðshlaupið sem er í beinni á Vísi. Hvað fer okkar fólk langt á HM í þessum aðstæðum?

Svo renndi Besta sætið aðeins yfir viðtalið við Arnar Gunnlaugsson sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki í dag. Það má horfa á það á Vísi eða hlusta í hlaðvarpsformi hér að neðan.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum sem fyrr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×