Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 17. október 2026 18:20 Það er ansi grátt og blautt á Arnarstapa á sunnanverðu Snæfellsnesi en Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri Grundarfjarðar segir bæjarbúa meðvitaða um spánna. Aðsend Appelsínugul viðvörun tók gildi klukkan 16:00 í Breiðafirði og samkvæmt spám verður hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi. Vísir ræddi við fólk á svæðinu og spurðist fyrir um hvernig aðstæður væru og hvort þau hefðu undirbúið sig á einhvern hátt fyrir storminn en viðvörunin fellur úr gildi í kvöld. „
Já, það er mjög hvasst hérna og líka byrjað að rigna. Þetta er nánast orðið að stormi,“ sagði Marim, starfsmaður á veitingastaðnum Sker í Ólafsvík. Hann sagði gesti hafa átt í erfiðleikum með að opna bílhurðar á planinu fyrir framan staðinn og að aðeins þeir hugrökkustu hefðu hætt sér út að borða í rokinu. „Ég stend vaktina þar til klukkan átta í kvöld og ef einhver er nægilega hugrakkur til að leggja sér leið hingað eru að sjálfsögðu allir velkomnir,“ sagði hann einnig. Hér fyrir ofan má sjá myndband sem var tekið upp á fimmta tímanum fyrir utan veitingastaðinn Matarlist. Sá er innan við hundrað metrum frá veitingastaðnum Sker. Fólk upplýst um spánna Birkir Jón Jónsson, bæjarstjóri Grundarfjarðar, segir blása vel og rigna en því hafi verið beint til bæjarbúa að halda sig innandyra á meðan lægðin gangi yfir. „Það var búið að lýsa því yfir að spáin væri slæm og fólk var mjög vel meðvitað um það hér svona heilt yfir,“ sagði hann í samtali við Vísi. Í dag losnuðu þakplötur af íþróttahúsinu í Grundarfirði en Hinrik Konráðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins sagði í samtali við Vísi að þær hefðu byrjað að flettast af í rokinu og vinna hefði verið erfið. Björgunarsveitin Klakkur hafi svo verið búin að tryggja aðstæður á þriðja tímanum í dag. „Það var aðdáunarvert að fylgjast með starfi björgunarsveitarinnar í morgun og sjá hvað hérna allir voru tilbúnir að leggja lið, atvinnurekendur hér lánuðu bíla og lyftara og fleira til þess að takast á við aðstæðurnar og það er nú svona mesti léttirinn núna að vera búinn að tryggja þetta þak eins og kostur er,“ sagði Birkir um málið. Af tvennu illu Nú sé ekkert að gera nema hvetja fólk til að hafa það náðugt innandyra og fylgjast með þróun mála. Það sé í það minnsta kostur að það eigi aðeins að rigna en ekki snjóa. Justyna Ondycz er eigandi veitingarstaðarins MAtalist í Ólafsvík en hú segir gesti ekki hafa látið veðrið á sig fá.Aðsend „Ég er nú fæddur og uppalinn á Siglufirði og það er svo sem ekki langt síðan heljarinnar veður gekk þar yfir og eins og ég segi tökum við þessar aðvaranir alvarlega. Það er nú svona, svona lán að þetta er í formi rigningar en ekki snjókomu.“ Justyna Ondycx er eigandi veitingastaðarins Matarlist í Ólafsvík en hún sagði ágæta umferð af fólki á staðnum í dag þrátt fyrir veðrið. Einhverjir tugir hefðu þegar komið við og fengið sér að borða. „Veðrið er ekkert svo slæmt, en ekkert sérstakt heldur,“ sagði hún í samtali við Vísi og bætti við að „það er að bæta í vindinn samt.“ Orðið verulega hvasst Bræður sem hættu sér í bústað á Arnarstapa, sem liggur utarlega á sunnanverðu Snæfellsnesi, segja farið að hvessa allhressilega á svæðinu. Annar þeirra er enn á staðnum en hinn rétt ókominn í bæinn. Sá hafði lagt snemma af stað í tilraun til að vera ekki á ferð þegar veðrið væri sem verst. Hér fyrir ofan má sjá myndband frá því klukkan 16:00 í dag á Arnarstapa. „Það er létt rigning hérna og verulega hvasst,“ sagði Helgi Snær Agnarsson en hann er staddur í sumarbústað á Arnarstapa. Veðrið hafi verið svipað síðustu klukkutímana en það sé víst verra norðar á nesinu. „Ég er búinn að heyra í fólki á Hellissandi að það er verra þar,“ sagði hann en vinur hans sem hafði ætlað að keyra yfir og kíkja í mat hafði forfallast: sá sér ekki fært að mæta enda ekkert ferðaveður á svæðinu. Pottlokið pikkfast Það séu líka áberandi færri ferðamenn á Arnarstapa en vanalega en Helgi og kærastan hafi tryggt alla lausamuni við bústaðinn fyrir kvöldið. Það væri líka áberandi mikil bræla og öldugangur. Hann ætli að vona að það sé búið að tryggja allt vel á höfninni. „Við erum búin að festa pottinn andskoti vel, sko,“ sagði Helgi og ítrekaði „það er engin umferð hérna og ekki neinn að fara upp veginn hjá Stapafelli eða neitt.“ Hér fyrir ofan má sjá myndband úr Borgarnesi frá því á fjórða tímanum. Þau ætli að hafa það náðugt í kvöld og keyra svo heim á morgun. Bróðir Helga hafi lagt af stað fyrr í dag og sá sagði verstu hviðurnar vera við komuna í Borgarnes.
Veður Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira