Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn

Sindri Sverrisson skrifar
Alex Iwobi skoraði sigurmarkið gegn Hull í dag.
Alex Iwobi skoraði sigurmarkið gegn Hull í dag. Getty/Silvina Brodersohn

Alex Iwobi skoraði eina mark leiksins á 33. mínútu eftir að Norðmaðurinn Sander Berge hafði verið fljótur að átta sig og kom boltanum á hann í vítateignum.

Undir lok leiks, í upphafi uppbótartíma, var Ryan Sessegnon rekinn af velli fyrir slæma tæklingu en það kom þó ekki í veg fyrir sigur heimamanna.

Þar með eru Fulham-menn lausir úr botnsætinu og komnir upp í 15. sæti með fimm stig en Hull er enn í 9. sæti með níu stig. 

Tottenham er nú í botnsætinu en á leik til góða við Coventry á mánudagskvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira