Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar 18. október 2026 11:00 Um þessar mundir er margra ára grasrótarstarfi Reiðhjólabænda að ljúka. Félagið sem hóf starfsemi sína fyrir um 20 árum sem óformlegur hópur vina í raunheimum, óx og dafnaði með hjálp Facebookhóps og varð svo árið 2020 að skráðu félagi með kennitölu og var nýlega komið með rúmlega 200 skráða félagsmenn og konur. Félagið barðist á mörgum sviðum fyrir bættum hagsmunum hjólandi fólks, en nú er sem sagt komið að leiðarlokum. Starfsemin hefur snert á flestu því sem viðkemur hjólreiðum, hvort sem það er sem íþrótt eða daglegum samgöngumáta. Hjólasöfnun er líklega það verkefni sem flest fólk þekkir, þar sem gömul og þreytt reiðhjól fengu nýtt líf með hjálp fjölmargra sjálfboðaliða og voru svo gefin fólki sem ekki hafði aðrar leiðir til að eignast reiðhjól. Á þeim 6 árum sem Reiðhjólabændur hafa komið að verkefninu, voru yfir 5.000 reiðhjól lagfærð og gefin. Og sumir þeirra sjálfboðaliða sem hjálpuðu til við verkefnið án þess að hafa nokkurn tíma áður komið að reiðhjólaviðgerðum starfa nú við reiðhjólaverkstæði borgarinnar. Margt annað var gert, svo sem að sjá um Hjólagæslu á Menningarnótt, þrautabraut fyrir grunnskólabörn á Barnamenningarhátíð, þátttaka í viðburðum svo sem Evrópskri Samgönguviku, Reykjavíkurleikum og öðrum menningartengdum viðburðum. Auk þess rak félagið í mörg ár stórt verkstæði í félagsheimilinu að Sævarhöfða 31, sem var lengi vel aðgengilegt öllum sem þangað vildu koma. Þaðan voru erlendir hjólandi ferðamenn þjónustaðir, erlendir skiptinemar í borginni fengu lánuð reiðhjól til eigin afnota, grúskarar fundu mikilvæga varahluti í gömul og sjaldgæf hjól sem verið var að gera upp. Nokkrir kassabílar hafa verið smíðaðir með gjörðum og dekkjum frá verkstæði Reiðhjólabænda og í geymslum félagsins varð líka til vísir að merkilegu reiðhjólasafni sem hefði getað orðið hluti af stærra samhengi í samgöngusögu landsins. Því miður enda bæði varahlutirnar og reiðhjólasafnið að öllum líkindum í málmendurvinnslunni innan fárra daga. Flest dagúrræði geðheilbrigðiskerfisins hafa á einhvern hátt notið góðs af starfsemi Reiðhjólabænda. Hvort sem það er með einfaldri yfirferð eða stærra viðhaldi á reiðhjólum, gjafahjólum til einstaklinga innan kerfisins, gjafahjólum til gesta neyðarskýlanna í Reykjavík eða aðstoð við að afla varahluta fyrir þau hjól sem úrræðin eiga sjálf. Fjölmargar vinnustundir sjálfboðaliða hafa tryggt að skjólstæðingar geðheilbrigðiskerfisins hafa þannig átt aðeins betri möguleika á svolítið auknum lífsgæðum. En því lýkur núna og úrræðin þurfa framvegis annað hvort að borga fyrir þjónustuna eða leggja niður hjólatúrana. Grasrótarstarfsemi á því miður almennt verulega undir högg að sækja. Hvort það er almennt anníki á öðrum sviðum eða áhugaleysi sem veldur því að fólk hefur sig ekki upp úr sófanum og fer ekki af stað til að taka þátt í svona starfi er erfitt að vita. En það er alveg ljóst að svona starfsemi lifir ekki af ef enginn sinnir henni. Að smella á “like” hnappinn á Facebook síðu hópsins breytir engu, leggur ekkert til og hefur ekkert hagnýtt gildi. Það borgar enginn rafmagnsreikninginn eða leiguna með “like”-hnappnum. Fyrir svona félagsstarf er það miklu meira virði að fólkið sem nýtur góðs af starfinu mæti á staðinn einstaka sinnum og bjóði sína hjálp við að leysa þau verkefni sem þarf að leysa. Því verkefnin leysa sig ekki sjálf og af nógu er að taka. Síðastliðin ár hafa nokkrir fastagestir borið uppi starfsemina á Sævarhöfðanum. Það er þetta fólk sem tryggði að á hverju mánudagskvöldi var góð stemmning á staðnum, mögulegt að fá aðstoð við hjólaviðgerðir, leiðbeiningar um dekkjaskipti og jafnvel bara spjall í kaffistofunni. Þetta fólk steig fram og hjálpaði til þegar þurfti að mála eitthvað, smíða eitthvað, setja upp eða taka niður. Þetta fólk bjó til félagið og hélt því gangandi. En því miður var þessi hópur allt of fámennur til að starfsemin gæti haldið áfram eða vaxið að neinu ráði. Það eru takmörk fyrir því hversu mikið hægt er að leggja á fáa einstaklinga í svona starfi, óháð því hversu mikið fólk leggur sig fram og hversu þakklátt félagið segist vera fyrir það. Í lok október rennur út sá tími sem félagið hefur afnot af aðstöðunni við Sævarhöfða 31. Þar sem svona starfsemi er einfaldlega ekki möguleg ef hún á sér engan samastað er það mjög miður að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki boðið félaginu og öðrum í svipaðri stöðu neitt samtal um aðra valkosti eða mögulegt framhald. Engin tilraun hefur verið gerð af hálfu þeirra sem stýra borginni til að kynna sér þessa grasrótarstarfsemi eða mikilvægi hennar fyrir samfélagið áður en henni var gert ómögulegt að lifa af. Og rétt eins og í raunheimum þá deyr sú grasrót sem enga næringu fær. Þau fyrirtæki sem hafa stutt starfsemina síðastliðin ár eiga svo sannarlega skilið allt okkar þakklæti. Þar er reiðhjólaverslunin Örninn fremst í flokki, en ekki síður Dominos sem sá verkstæðinu fyrir rjúkandi pizzum á hverju mánudagskvöldi í nokkur ár. Aðrir aðilar hafa líka stutt félagið, svo sem samfélagssjóðir Krónunnar og Landsbankans, sem sáu þýðingu félagsins fyrir samfélagið og hversu jákvæð áhrif það hafði fyrir þá sem þurftu mest á því að halda. Sömuleiðis var stuðningur Velferðarráðs Reykjavíkur mjög mikilvægur í þau fáu skipti sem hans naut í upphafi við uppbyggingu aðstöðunnar. Það var oft mikils virði fyrir þetta litla en samfélagslega mikilvæga félag að eiga trausta stuðningsmenn á réttum stöðum. Eftir 20 ár með Bændarúntum, Opnum Verkstæðiskvöldum, námskeiðum, sýningum og viðburðum er komið að leiðarlokum og félagið verður formlega lagt niður á síðustu dögum októbermánaðar 2026. Þau sem ennþá vilja að til sé félagsskapur sem ber hag hjólandi fólks fyrir brjósti gætu kannski skoðað að skrá sig í Samtök um Bíllausan Lífsstíl eða Landssamtök hjólreiðamanna. Það er ekki nóg að skrá sig í Facebook hóp og bíða eftir að aðrir geri allt sem gera þarf. Þetta hjólar sig nefnilega ekki sjálft. Höfundur er formaður Reiðhjólabænda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjólreiðar Félagasamtök Reykjavík Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun