Fótbolti

Tómas gat ekki stöðvað niður­lægingu Hearts

Sindri Sverrisson skrifar
Tómas Bent Magnússon sækir að Kasper Högh í leiknum á Celtic Park í dag.
Tómas Bent Magnússon sækir að Kasper Högh í leiknum á Celtic Park í dag. Getty/Craig Foy

Hearts, lið Tómasar Bents Magnússonar, fékk sannkallaðan skell á Celtic Park í dag þegar liðið tapaði 7-1 í skosku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Hearts hefði með sigri getað minnkað forskot Celtic á toppnum í tvö stig en það var aldrei inni í myndinni í dag.

Staðan var orðin 5-1 í hálfleik og þá fyrst fékk Tómas tækifæri til að gera eitthvað í málunum því hann kom inn á sem varamaður og lék allan seinni hálfleik. 

Ekki tókst þó að laga stöðuna og Celtic-menn bættu við tveimur mörkum.

Benjamin Nygren og Callum Osmand skoruðu tvö mörk hvor fyrir Celtic sem nú er með 24 stig eftir níu leiki en Hearts er með 16 stig í 3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×