„Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Andri Broddason skrifar 20. október 2026 09:23 Gunnar Lárus bætti Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi með því að hlaupa 69 hringi. Vísir/Viktor Freyr Gunnar Lárus Karlsson setti Íslandsmet í bakgarðshlaupinu þegar hann kláraði 69. hringinn sinn. Garpur I. Elísabetarson tók viðtal við Gunnar Lárus þegar hann kom í mark og var hann virkilega ánægður með árangurinn eins og við mátti búast. „
Ég svaf vel og fékk koffíntöflur og var með mjúkan stíganda, þá kom þetta allt,“ sagði Gunnar Lárus eftir að hann kláraði hringinn sem tryggði honum sigurinn. Sá hringur var sá hraðasti sem hann hafði farið síðan hlaupið byrjaði. „Ég trúði að ég gæti unnið en ég var ekki að horfa á Íslandsmetið út af veðrinu. Eftir 17 hringi þá var þetta erfiðasti Bakgarður sem ég hef tekið.“ Veðrið um helgina var ekki gott og endaði langur hluti hvíldartímans í að skipta yfir í þurr föt úr blautu fötunum sem hlaupararnir voru í. Þar skipti miklu máli að eiga góða að sem hjálpuðu til við að halda Gunnari hlýjum og þurrka hann. Gunnar Lárus pantaði flug í morgun en nú er víst að hann nái ekki fluginu vegna frábærs árangurs í Bakgarðshlaupinu. Hann hefur því ekki gert ráð fyrir því að ná að vera svona lengi í brautinni. „Flugmiðinn hefði akkúrat sloppið við að ná [Íslands]metinu um klukkan tvö. Þá hefði ég akkúrat fengið smá tíma til að komast heim. Hefði bara verið ógeðslegur í fluginu.“ Þrátt fyrir að Gunnar Lárus hafi verið einn að hlaupa þá gæti hefði hann ekki náð svona langt án þess að eiga gott fólk að. Nánasta fólk Gunnars stóð vaktina og kom honum í gegnum erfiðið. „Þetta verður aldrei gott nema þú sért með gott fólk í kringum þig. Þetta er liðsíþrótt og þau stóðu sig ógeðslega vel.“ G-in þrjú: Guðmundur Lúther Hallgrímsson, Gunnar Lárus Karlsson og Guðjón Sigurðsson voru lengi vel þeir síðustu í keppninni. „Við vorum að tengja vel saman og rúlluðum vel saman. Eftir aðra nóttina var ég líklegur í að hoppa í ána og segjast hafa dottið í hana og segja að þetta sé búið. Hausinn var bara farinn en strákarnir náðu að tala mig til.“ Ásamt strákunum fékk hann einnig góð ráð frá konunni sinni sem talaði hann til. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Bakgarðshlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Sjá meira