Körfubolti

Slógu ís­lensku dómararnir heims­met?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Körfuboltadómararnir og kylfingarnir Bjarki Þór Davíðsson, Kristinn Óskarsson og Davíð Kristján Hreiðarsson.
Körfuboltadómararnir og kylfingarnir Bjarki Þór Davíðsson, Kristinn Óskarsson og Davíð Kristján Hreiðarsson.

Dómarar í Bónus-deildinni í körfubolta kunna ýmislegt annað en að blása í flautuna og dæma körfuboltaleiki. Það sést meðal annars á nýrri færslu eins allra reyndasta körfuboltadómara landsins.

Kristinn Óskarsson vakti athygli á skemmtilegri staðreynd í færslu sinni á samfélagsmiðlum.

Kristinn var að hefja sitt fertugasta tímabil sem körfuboltadómari fyrir Körfuknattleikssambandið og á dögunum dæmdi hann stórleik Vals og Grindavíkur í Bónus deild karla.

Meðdómarar voru þeir Bjarki Þór Davíðsson og Davíð Kristján Hreiðarsson. Kristinn er á því að þeir félagar hafi sett nýtt heimsmet í þessum leik.

„Þrír körfuboltadómarar sem dæma saman í efstu deild í sínu heimalandi — allir virkir kylfingar — með samanlagða golfforgjöf upp á aðeins 13,6. Ég er tilbúinn að veðja á að hvergi í heiminum hafi dómaratríó stigið inn á völlinn með lægri samanlagða golfforgjöf,“ skrifaði Kristinn.

Kristinn hefur keppt á Íslandsmótinu í golfi og varð klúbbmeistari Golfklúbbs Sandgerðis fyrir nokkrum árum. Bjarki Þór er í Golfklúbbnum Oddi en hefur margsinnis unnið meistaramót Golfklúbbs Úthlíðar (GÚ) og hampað titlinum klúbbmeistari karla. Davíð Kristján er í Golfklúbbnum Keili (GK) í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×