Neytendur

Fækka heim­sóknum til muna með einni breytingu

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Nú er hægt að nýta myndina í vegabréfinu í aðrar umsóknir.
Nú er hægt að nýta myndina í vegabréfinu í aðrar umsóknir. Stjórnarráðið

Sýslumenn um land allt búast nú við færri heimsóknum eftir breytingu sem leiðir til þess að umsækjendur þurfa ekki að mæta til sýslumanns til að skila inn mynd. Nú er hægt að nota mynd úr vegabréfi í öllum stafrænum umsóknum.

Fyrir þessa breytingu þurftu allir umsækjendur að mæta með passamynd á ljósmyndapappír og undirrita skjöl. Nú geta umsækjendurnir valið mynd úr vegabréfi sínu í umsókninni.

„Um 343 þúsund vegabréf eru í gildi og geta umsækjendur sem eiga mynd í vegabréfi nýtt þá mynd,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Stafræns Íslands.

Um fjörutíu þúsund umsóknir geta nýtt þessa lausn, þar af um tuttugu þúsund umsóknir um endurnýjun ökuskírteina. Einnig ætti þetta að einfalda sextán þúsund umsóknir vegna nýrra ökunema, fullnaðarskírteinis þeirra og um fjögur þúsund umsóknir um samrit eða endurprentun ökuskírteinis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×