Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. október 2026 15:00 Það er eins gott að þessi litli selur í Húsdýragarðinum sé hugaður. vísir/vilhelm Alls konar vættir, draugar og ófreskjur úr íslenskum sagnaarfi munu lifna við í Húsdýragarðinum í dag. Þjóðfræðingur sem mun leiða gesti um garðinn til að hitta umrædd skrímsli segir gönguna fyrir unga sem aldna en þó sé mikilvægt að þeir sem mæta séu hugaðir.
Um þessar mundir fer fram haustfrí í grunnskólum Reykjavíkurborgar og víða annars staðar og er af því tilefni boðið upp á ýmsa afþreyingu víða um borg fyrir börn og fjölskyldur. Á fjölmörgum söfnum og bókasöfnum má finna skapandi smiðjur fyrir unga sem aldna. Í dag er fyrsti dagur vetrar og af því tilefni blæs Húsdýragarðurinn til hrekkjavökuveislu þar sem að alls konar draugar og ófreskjur lifna við. Klukkan hálf fimm mun þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir leiða gesti um garðinn og segja sögur úr íslenskum þjóðsögum. „Það verður drauga- og skrímslaganga í Húsdýragarðinum og ég ætla að fara í göngu og þarna verður líka fólk úr Pilkington Props og Hringleik. Ég mun segja nokkrar vel valdar og skemmtilegar íslenskar þjóðsögur og frá þessum skrímslum sem við eigum í þjóðsagnaarfinum og síðan munum við rekast á nokkur þeirra sem eru á vappi þarna í garðinum.“ Erum við að tala bara um Skoffín og Urðarkött og allt það helsta eða hvað verður þarna á seyði? „Ég hef það eftir öruggum heimildum að það verði þarna bæði draugar og tröll og svo verður þarna fjörugalli og skrímslamóðirin en svo eigum við líka þjóðsögur eins og til dæmis um selina.“ Vika er til hrekkjavöku og er því gangan vel til þess gerð að fá smá forskot á sæluna. Dagný segir bandarísku hátíðina og íslenskan draugagang eiga góða samleið. „Það eru náttúrulega hefðir fyrir því að hér hafi verið einhver hátíðarhöld svona í kringum þessar vetrarnætur sem eru nú að bresta á, þótt hrekkjavakan sem við höldum núna sé náttúrulega að erlendri fyrirmynd sem við sjáum í kvikmyndum og svona. Við eigum nóg af óhugnaði sem er hægt að draga fram á hrekkjavökunni.“ Hún segir gönguna vera fyrir unga sem aldna. „Þetta er hugsað bara fyrir alla fjölskylduna og svona þá sem eru kannski aðeins hugaðri. Það getur verið pínu svona óhugnanlegt kannski en líka mjög skemmtilegt.“
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Vetrarhátíð Dýr Reykjavík Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Þetta er undarlegt…: QWERTY-stafaruglið á símum og lyklaborðum Áskorun Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Fleiri fréttir Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sjá meira