Enski boltinn

Newcastle vann í London og sann­gjarn jafn­tefli í Hull

Andri Broddason skrifar
Newcastle náði góðum sigri á Crystal Palace í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Newcastle náði góðum sigri á Crystal Palace í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mike Hewitt/Getty Images

Nóg var um að vera í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Newcastle lagði Crystal Palace 2-0 og Hull og Brentford gerðu 1-1 jafntefli.

Crystal Palace fékk gesti að norðan þegar Newcastle heimsótti liðið. Leikurinn var rólegur til að byrja með og var markalaust í hálfleik. Gestirnir í Newcastle áttu þó eftir að mæta með mikla orku í seinni hálfleikinn.

Á fyrstu þrettán mínútum seinni hálfleiksins náðu William Osula og Harvey Barnes að skora fyrir Newcastle sem reyndust vera lokamörk leiksins. Með sigrinum komst Newcastle í áttunda sæti deildarinnar með ellefu stig en Crystal Palace situr í því sautjánda með aðeins sjö stig.

Sanngjarn jafntefli

Á sama tíma tóku nýliðarnir í Hull á móti Brentford í sveiflukenndum leik. Heimamenn í Hull náðu þó að taka forystuna eftir að Aaron Hickey braut á Tim Iroegbunam inni í vítateig Hull eftir varnarmistök. Oli McBurnie fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi.

Gestirnir í Brentford reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en það gekk erfiðlega fyrir þá. Það hafðist þó á 63. mínútu þegar Dango Outtara náði að skora eftir mikla baráttu inni í teig Hull. Það reyndist vera lokamark leiksins og skildu liðin jöfn að sem verður að teljast vera sanngjörn úrslit.

Eftir jafnteflið er Brentford í sjötta sæti deildarinnar með ellefu stig en nýliðarnir í Hull hafa eftir frábæra byrjun komist í tíunda sæti deildarinnar með tíu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×